Stendur ekki til að leggja niður Bíladaga Stefán Ó. Jónsson skrifar 14. júní 2014 23:17 Eiríkur Björn Björgvinsson er bæjarstjóri á Akureyri. VISIR/GVA „
Þetta vandamál hefur verið rætt töluvert undanfarin ár og ýmislegt hefur verið gert til þess að reyna að sporna við þessu,“ segir Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri, um þrálátt ónæði sem íbúar bæjarins hafa kvartað yfir vegna hinna svokölluðu Bíladaga sem nú standa yfir fyrir norðan. Vísir flutti fréttir af því að Lögreglan á Akureyri finnur nú fyrir töluverðri fjölgun í umferðalagabrotum milli ára og að þrálátt spól ökumanna sé að gera Akureyringa gráhærða. Er nú svo komið að embættið nær varla að halda utan um öll þau tilvik sem berast inn á borð til þeirra, slíkur er fjöldi þeirra.„Við höfum átt í góðu samstarfi við Bílaklúbb Akureyrar sem heldur utan um skipulagningu hátíðarinnar. Við réðumst til að mynda í mikla uppbyggingu á æfingasvæði klúbbsins til þess að ná spyrnum af götum bæjarins sem áður voru mikið vandamál,“ segir Eiríkur. Formleg hátíðardagskrá Bíladaga fer fram á æfingasvæðinu og er það iðullega undirlagt bílum og bílaáhugamönnum. Eiríkur segir að hraðahindrunum hafi einnig verið fjölgað í bænum til þess að draga úr hraðaakstri en það virðist lítinn árangur hafa borið. Sektir vegna ofsaaksturs hafa aldrei verið fleiri í sögu hátíðarinnar. Eiríkur segir að þrátt fyrir að meginþorri hátíðargesta hafi hagað sér með stakri prýði sé misjafn sauður í mörgu fé og að þeir svörtu séu alltaf fyrirferðameiri. „En svo sækir hingað líka fólk sem vill ekki fylgja lögum og reglum, hvorki hér né annars staðar,“ bætir hann við. Ekki hafi borist í tal hjá bæjarstjórn Akureyrar að leggja hátíðina niður, þrátt fyrir allt sem á undan er gengið. „Enda snýst hátíðin ekki um það að ónáða fólk heldur um það að bílar eru líka skemmtun,“ segir hann og bætir við að menn eigi vel að geta skemmt sér í kringum slík tæki á afmörkuðum svæðum. Eiríkur vonar að bílaáhugamenn passi hegðun sína um helgina og vill senda þeim sem að brjóta af sér varúðarorð: „Ef þetta verður til þess að við leggjum niður hátíðina þá geta þessir menn bara sjálfum sér um kennt“
Mest lesið Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira