Innlent

Lögreglan veitti bíl eftirför í Mosfellsbæ

Stefán Árni Pálsson skrifar
visir
Lögreglan veitti bíl eftirför í Mosfellsbæ í morgunsárið en um var að ræða mann sem mældist á 151 kílómetra hraða á klukkustund á Vesturlandsvegi.

Árni Þór Sigmundsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn, staðfesti í samtali við fréttastofu að maðurinn hafi stokkið út úr bíl sínum eftir stutta eftirför og reynt að flýja.

Því næst handtóku lögreglumenn manninn fyrir utan Lágufellslaug og vistuðu hann í fangaklefa á lögreglustöð. 

Maðurinn hefur ekki verið yfirheyrður en grunur leikur á því að hann hafi staðið að innbroti í bænum í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×