Innlent

Fjórar milljónir renna í minningarsjóð Lofts

Stefán Árni Pálsson skrifar
Á myndinni má sjá Birgi Örn Birgisson, framkvæmdastjóra Domino's Pizza, Þórunni Brandsdóttur f.h. minningarsjóðs Lofts Gunnarssonar og Hrefnu Sætran, meistarakokk.
Á myndinni má sjá Birgi Örn Birgisson, framkvæmdastjóra Domino's Pizza, Þórunni Brandsdóttur f.h. minningarsjóðs Lofts Gunnarssonar og Hrefnu Sætran, meistarakokk. visir/aðsend
Miklar vinsældir góðgerðarpizzunnar úr smiðju Hrefnu Sætran meistarakokks munu koma útigangsmönnum í Reykjavík til góða á næstunni en þeir munu fá nýja skápa, ný rúm og sængurföt og ýmis raftæki, húsgögn og húsmuni inn á gistiskýli og athvörf sín í borginni.

Það var veitingakeðjan Domino’s sem fékk Hrefnu Sætran til að búa til uppskrift að góðgerðarpizzunni en allt söluandvirði pizzurnnar rann í minningarsjóð Lofts Gunnarssonar.

Það var móðir Lofts, Þórunn Brandsdóttir, sem veitti upphæðinni móttöku úr hendi Hrefnu og Birgis Arnar Birgissonar, framkvæmdastjóra Domino’s á Íslandi.

Samtals söfnuðust rúmlega fjórar milljónir. Fjármunirnir munu nýtast við kaup á tuttugu og einu rúmi og sængurbúnaði sem mun skiptast á þrjá staði, Dagsetrið, úrræði fyrir heimilislausa á Miklubraut og smáhýsin á Granda.

Einnig verða keyptir skápar í gistiskýlið fyrir heimilislausa karla, en þess má geta að það flytur inn í nýtt húsnæði í dag, mánudag.

Ennfremur mun sjóðurinn kaupa húsgögn, raftæki og aðra muni sem bæta lífsgæði fólks á stöðum sem þjónusta útigangsfólk.

Uppskriftin innihélt hægeldað svínakjöt, tvenns konar lauk og BBQ sósu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×