Óttast að verkfallið standi í nokkrar vikur Hjörtur Hjartarson skrifar 27. október 2014 19:45
Formaður læknafélags Íslands segir að ef lög verða sett á verkfallsaðgerðir lækna muni það hafa mjög slæmar afleiðingar í för með sér. Læknaflótti muni aukast og enn færri snúi heim. Örtröð myndaðist á læknavaktinni í Kópavogi síðdegis. Verkfallsaðgerðir lækna hófst á miðnætti og standa til miðnættis annaðkvöld. Þá lögðu niður störf læknar á rannsóknarsviði Landspítalans og Kvenna og barnasviði sem og hjá heilsugæslustofnunum um allt land. Það var tómlegt um að litast á heilsugæslustöðvunum á höfuðborgarsvæðinu í dag enda aðeins einn yfirlæknir á vakt sem sinnir einungis bráðatilfellum. Sama á við um Landspítalann þar sem tugum aðgerða hefur verið frestað. Að öðru leyti hefur allt gengið vel fyrir sig. „Ég ræddi við lækna sem voru á verkfallsvakt fyrir okkur í morgun, bæði á heilsugæslustöðvum og niðri á Landspítala og ég held, í öllum aðalatriðum, gengið vel fyrir sig,“ segir Þorbjörn Jónsson, formaður Læknafélags Íslands. Sjúklingum geta enn farið á bráðamóttöku Landspítalans þar sem hjúkrunarfræðingar meta hvert tilfelli fyrir sig. Umferðin var nokkuð róleg þar fram eftir degi og fengu allir sem þangað komu viðtal við lækni. Ljóst er þó að verkfallið hefur töluverð óþægindi í för með sér fyrir marga. Það kom bersýnilega í ljós þegar læknavaktin í Kópavogi var opnuð klukkan fimm síðdegis. Þar myndaðist örtröð þegar fólk reyndi að verða sér úti um læknisþjónustu. Áætlað er að heilsugæslustöðvarnar á höfuðborgarsvæðinu þjóni um fimm þúsund manns á dag og var hluti þeirra mættur í Kópavoginn áðan.Á sama tíma hittustu deiluaðilar hjá ríkissáttasemjara. Ekki ríkti mikil bjartsýni fyrir fundinn að hann myndi skila miklu. „En fyrst verkfallið er byrjað þá er auðvitað viðbúið að það standi í einhverja daga eða vikur.“ Ekki hefur komist til tals að setja lög á verkfallsaðgerðirnar en Þorbjörn telur að slíkt myndi auka á læknaflóttann frá landinu. „Jú, ég held að það sé ljóst. Þetta myndi líka festa það í sessi að læknar sem lokið hafa sínu sérnámi erlendis og eru þannig séð, tilbúnir til að flytja til landsins, að þeir munu ekki gera það vegna þess að kjörin eru allt of lök til að menn leggi í það,“ segir Þorbjörn.
Mest lesið Miklar hreinsanir fyrirhugaðar í borgarstjórnarliði xD Innlent Hvað er vitað um manninn sem var skotinn við Mar-a Lago? Erlent Ófremdarástand eftir andlát voldugasta fíknaefnabaróns heims Erlent Mælir gegn heilskimun Intuens Innlent Framboðið heitir Vinstrið og Finnur verður í sjötta sæti Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Loka hvorki fornmáladeildinni né hætta latínukennslu Innlent Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður sagt geta orðið strax í ágúst Innlent Segir Trump ekkert botna í því hvers vegna Íranir gefa ekki eftir Erlent Leggur til að dánarbú án lögerfingja renni í almannaheillasjóð Innlent Fleiri fréttir Markmiðið ekki að höfða til kvíða aðstandenda Skilorð fyrir vopnaðan nytjastuld Loka hvorki fornmáladeildinni né hætta latínukennslu Erfitt að segja til um upptök gróðureldanna Mælir gegn heilskimun Intuens Miklar hreinsanir fyrirhugaðar í borgarstjórnarliði xD Stefnuræða Þorgerðar Katrínar og gróðureldarnir Enn ekkert ákveðið um hvenær þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram Framboðið heitir Vinstrið og Finnur verður í sjötta sæti Bein útsending: Stefnuræða Þorgerðar Katrínar í mannréttindaráðinu Síbrotagæsla eftir afskipti lögreglu tvo daga í röð Leggur til að dánarbú án lögerfingja renni í almannaheillasjóð Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður sagt geta orðið strax í ágúst Vatnsból hefðu verið í hættu ef vindáttin hefði verið önnur Tvær handtökur í nótt Enginn sinueldur og róleg nótt hjá slökkviliði eftir eril gærdagsins Voru í þann mund að slökkva eldinn þegar það barst tilkynning um annan Leggja til vantraust á hendur Silju Báru Líf bar sigur úr býtum Intuens hafi nýtt sér óttann og kvíðann sem krabbamein valdi til að græða Sinueldur við Elliðavatn „Hrikalega óábyrgt og jafnvel hættulegt“ að senda börnin sín vísvitandi veik á leikskóla Rúta full af ferðamönnum fór út af veginum Vísar gagnrýni verkalýðsleiðtoga til föðurhúsanna Býst við að samningar náist fljótlega og auglýsir eftir starfsfólki Fjórir sinueldar á sólarhring: „Við skulum bara leggjast á bæn og vona að það komi snjór“ Leitað logandi ljósi eftir nýjum kirkjugarði á Selfossi Sjálfsafgreiðslukassar og aukin sjálfvirkni auki vandann Sinueldar, sjúklingar og skafrenningur Reykur sást á flugvallarsvæðinu Sjá meira