Konur og borgarbúar með meiri menntun Sveinn Arnarsson skrifar 6. desember 2014 14:00 Rektor Háskólans á Akureyri segir mun á háskólamenntun íbúa eftir búsetu óafsakanlegan. Vísir/Valli
Mun fleiri íslenskar konur hafa lokið háskólanámi en karlar. Munurinn á körlum og konum hefur aukist jafnt og þétt síðustu ár. Að mati Ástu Urbancic, fagstjóra hjá Hagstofunni, mun þetta bil milli kvenna og karla halda áfram að aukast næstu ár ef kynjahlutföllin í háskólum landsins breytast ekki. „Við sjáum það í yngri aldurshópunum að fleiri menntaðar konur eru að koma inn í greiningar okkar. Elstu aldurshóparnir eru öðruvísi samansettir, þar eru menntaðir karlmenn fleiri en konur. Því má leiða að því líkur að ef þróunin heldur áfram á þessa leið muni konum með háskólapróf halda áfram að fjölga,“ segir Ásta. Einnig kemur fram mikill munur á menntun íbúa höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðanna árið 2013. Á höfuðborgarsvæðinu höfðu 22,7 prósent íbúa á aldrinum 25-64 ára eingöngu lokið grunnmenntun en 42,3 prósent höfðu lokið háskólamenntun. Utan höfuðborgarsvæðisins höfðu 37 prósent íbúa eingöngu lokið grunnmenntun og 24,7 prósent lokið háskólamenntun.Eyjólfur GuðmundssonEyjólfur Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri, telur að þessa þróun þurfi að stöðva og markmiðið sé að fá fleiri karlmenn inn í háskólana. „80 prósent nemenda Háskólans á Akureyri eru konur. Hlutfallið er um 70 prósent í Háskóla Íslands. Ef þessi staða verður óbreytt lengi gætum við horft upp á þjóðfélag þar sem einstaklingar ná ekki að blómstra. Auðvitað er mikilvægt að menntun kynjanna sé sem jöfnust þannig að við getum byggt upp samfélag jafnréttis,“ segir Eyjólfur. Munur á menntunarstigi þjóðarinnar, eftir því hvort einstaklingar býr á höfuðborgarsvæðinu eða í landsbyggðunum, er að mati Eyjólfs óafsakanlegur og telur hann Háskólann á Akureyri mikilvægan hlekk í því að snúa þessari óheillaþróun við. „70 prósent brautskráðra kandídata við Háskólann á Akureyri eru staðsettir utan höfuðborgarsvæðisins eftir að námi lýkur við skólann. Sú staðreynd að Háskólinn á Akureyri sinnir að miklu leyti því að hækka menntunarstig utan höfuðborgarsvæðisins sýnir hversu mikilvægur skólinn er fyrir þjóðfélagið. Það væri áhugavert að sjá hvernig staðan væri ef ekki væri fyrir Háskólann á Akureyri,“ segir Eyjólfur.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira