Forsætisráðherra vill aukna samvinnu við Kína Heimir Már Pétursson skrifar 25. desember 2014 12:00 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra. Vísir/Vilhelm
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra lýsir ánægju sinni með fjölgun ferðamanna frá Kína til Íslands í viðtali við kínverska ríkisfjölmiðilinn Xinhua . Þar er greint frá því að 23 þúsund ferðamenn frá Kína hafi sótt Ísland heim á fyrstu ellefu mánuðum þessa árs og sé það fjölgun upp á 49 prósent. Fréttavefurinn China Daily greinir frá viðtalinu og þar býður forsætisráðherra kínverska ferðamenn hjartanlega velkomna til Íslands. „Við erum mjög ánægð með vöxt ferðaþjónustunnar og þá alveg sérstaklega með stóran hóp kínverskra ferðamanna sem við fögnum mjög,“ er haft eftir Sigmundi Davíð. Ástæða þess að Íslendingar séu svo glaðir með fjölgun kínverskra ferðamanna sé að þeir vilji hvetja til eins mikils samstarf við Kínverja og mögulegt sé. „Kína er á margan hátt land framtíðarinnar. Land í vexti á mörgum sviðum. Kínverjar hafa sýnt Íslandi áhuga og við erum svo sannarlega áhugasöm um Kína. Allt sem eykur samvinnu milli landanna er af hinu góða,“ segir Sigmundur Davíð í viðtalinu. Þá er haft eftir Ragnheiði Elínu Árnadóttur ráðherra ferðamála að hún sé ánægð með fjölgun ferðamanna frá Kína og hún vilji sjá að þeim fjölgi enn meira. Íslensk ferðamálasamtök hafi staðið fyrir markaðskynningum í nokkrum borgum Kína. Þá sé íslensk ferðaþjónusta að búa sig undir mikla fjölgun ferðmanna með styrkingu innviða ferðaþjónustunnar á Íslandi. Þá er greint frá því að tímaritið Icelandic Times hafi nýlega hafið útgáfu á kínversku til að uppfræða kínverska ferðamenn sem koma til landsins.
Mest lesið Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Fleiri fréttir „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Sjá meira