Brýn þörf á nýjum kirkjugarði í Reykjavík Heimir Már Pétursson skrifar 25. desember 2014 17:38 Þórsteinn Ragnarsson. vísir/stefán
Mikill fjöldi fólks hefur vitjað leiða ættingja og ástvina yfir jólin. En nú er farið að þrengja að um legstæði í Reykjavík. Forstjóri kirkjugarða borgarinnar vill hefja framkvæmdir við nýjan kirkjugarð í Úlfarsfelli strax næsta vor en fær engin svör frá borginni varðandi landið. Það er fastur liður hjá mörgum fjölskyldum að vitja leiða sinna nánustu yfir jóladagana og segir forstjóri Kirkjugarða Reykjavíkur röluverða umferð hafa verið um garðana í Reykjavík allt frá því á Þorláksmessu. „Og hefur sem betur fer dreifst á þann dag og síðan nær hún hámarki á aðfangadag og það er töluverð umferð í dag. Á jóladegi,“ segir Þórsteinn Ragnarsson forstjóri Kirkjugarða Reykjavíkur. Allar meginleiðir innan krikjugarðanna hafa verið ruddar fyrir jólin en þó hefur ekki reynst mögulegt að ryðja hliðargötur í görðunum. En það er líka farið að þrengja að í Gufuneskirkjugarði. Þegar kirkjugarðurinn í Gufunesi verður fullnýttur verður hátt á þriðju tug þúsunda manna jarðsettur í garðinum. En ekki er ráð nema í tíma sé tekið því garðurinn er að verða fullnýttur. „Jú, hér eru grafarsvæðin óðum að fyllast. Við eigum þrjú svæði eftir sem verða tilbúin 2018. Og eftir þann tíma, svona innan sex ára, þurfum við ný grafarsvæði. Nýjar kistugrafir,“ segir Þórsteinn. Kirkjugarðarnir hafi augastað á landi við Úlfarsfell en hafi átt í erfiðleikum með að skipuleggja það vegna skorts á svörum frá borginni. En samkvæmt spá Hagstofunnar frá 15. desember muni 2.100 manns látast á þessu ári en verði í kring um fjögur þúsund árið 2050. Þörfin fyrir legstæði sé því mikil. „En ég treysti því að borgaryfirvöld hugi að því núna að það má engan tíma missa. Því það tekur sex til átta ár að útbúa nýjan kirkjugarð,“ segir Þórsteinn. Og menn horfi til Hlíðarendasvæðisins varðandi jarðvegsefni sem þurfi í garðinn. „Það er alveg upplagt að nýta það sýnist mér. Það er um það bil sama jarðvegsfylling sem verður tekin þaðan og flutt þá yfir í Úlfarsfellið. Þetta er um hálf milljón rúmmetrar af jarðvegi,“ segir Þórsteinn. Að öðrum kosti verði að grafa Reykvíkinga utan borgarinnar á landi sem kirkjugarðarnir eiga í Kópavogi og dugi í stuttan tíma. „En það væri nokkuð hastarlegt ef höfuðborgin hefði ekki rými fyrir kistugrafir í náinni framtíð. Það væri hastarlegt. En það blasir við að fara verður með hina látnu út úr sveitarfélaginu ef ekki verður brugðist við mjög hratt,“ segir Þórsteinn.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Fleiri fréttir „Vissi ég að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Sjá meira