Heilbrigðiseftirlitið skoðar kirkjuklukkur Garðar Örn Úlfarsson skrifar 19. desember 2014 07:00 ÍEinn segir kirkjuklukkuhringingar lækka fasteignaverð en annar segir þær jafn notalegar og fuglasöng. Fréttablaðið/Hari „
Í staðinn fyrir að hringja kirkjuklukkum fyrir allar messur væri það eingöngu gert við stærri athafnir svo sem brúðkaup og jarðarfarir,“ segir í tillögu sem borgarbúi setur fram á vefnum Betri Reykjavík. Tillagan var ásamt mörgum tillögum af sama vettvangi tekin fyrir á fundi umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur á miðvikudag. Ráðið ákvað að óska umsagna frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur um málið. Í umræðum um kirkjuklukkuhringarnar á Betri Reykjavík eru sett fram rök bæði með og á móti tillögunni.Óþægilegt í þynnkunni „Í dag er það frekar talin kvöð en kostur að búa nálægt kirkju. Klukknahljómurinn getur verið sérstaklega óþægilegur fyrir til dæmis fólk sem vinnur á næturvöktum, eða yngstu börnin sem sofa á þessum tíma. Að ég tali nú ekki um þynnkuna,“ segir einn sem er fylgjandi því að dregið verði úr hringingunum. Annar segir að kirkjuklukkur séu hluti af umhverfinu og að alls ekki eigi að setja hindranir á notkun þeirra.Fagur og hátíðlegur hljómur „Mér finnst hljómur kirkjuklukkna afar fagur og hátíðlegur. Mér finnst það tilheyra stórborg að heyra klukkur hringja til messu eða annarra athafna. Þegar ég var í Tyrklandi fannst mér það setja skemmtilegan svip á borgina að heyra bænaköllin úr moskunum jafnvel þótt ég sé ekki múslimi.“ Í tillögunni er gert ráð fyrir því að við venjulegar messur – og mögulega við skírnir og fermingar – sé kirkjuklukkum ekki hringt heldur leikinn klukknahljómur í hátalarakerfum inni í kirkjunni.Notalegt eins og fuglasöngur „Ég er alveg til í að samgleðjast/samhryggjast fólki sem er að fagna/syrgja brúðkaupi/láti ástvina sinna og leyfa þeim að hringja kirkjuklukkunum á þeirri stóru stund. En alla sunnudaga væri nær að spila bara fyrir þá sem eru á leið til messu.“ Annar segir að svo lengi sem klukknaspil sé ekki ofnotað, eins og verið hafi fyrst í Hallgrímskirkju, sé það aðeins eðlilegt umhverfishljóð sem flestir hætti að heyra þegar þeir orðnir vanir því. „Kirkjuklukkur eru bara jafn notalegar og fuglasöngur.“
Mest lesið Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Sjá meira