Úthýst af leikskólum ef gjöld eru ógreidd Viktoría Hermannsdóttir skrifar 18. desember 2014 07:00 Fulltrúi Samfylkingar í fræðsluráði Hafnarfjarðar spurði hvort börn hefðu misst pláss á leikskóla eða frístundaheimilum vegna vangoldinna gjalda. Fréttablaðið/Vilhelm
Það hefur gerst að börn missi leikskólapláss vegna vangoldinna leikskólagjalda bæði í Hafnarfirði og Reykjavík. Samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg hafa um það bil sjö börn hætt í leikskóla á árunum 2012-14 í kjölfar verulegra vanskila. Fimm þeirra hófu leikskólavist að nýju þegar samið hafði verið um greiðslu. Innheimtureglur Reykjavíkurborgar kveða á um að leikskólaþjónustu skuli sagt upp þegar um veruleg vanskil er að ræða. Lendi foreldrar í vanskilum með leikskólagjöld er þeim bent á að tala við félagsráðgjafa á þjónustumiðstöðvum borgarinnar og þá frestast uppsögn til þess að hægt sé að vinna í málinu og leita lausna en fresturinn getur að hámarki verið þrír mánuðir. Ef foreldrar geta ekki greitt þá er lögð fram beiðni til afskriftarnefndar um að afskrifa vanskilin. Það er þá yfirleitt gert gegn því að viðkomandi skuldbindi sig til að standa við greiðslur áfallandi gjalda í að minnsta kosti sex mánuði. Hátt í tíu forsjáraðilar leikskólabarna hafa fengið slíka afskrift á þessu ári hjá Reykjavíkurborg. Fulltrúar minnihlutaflokka í fræðsluráði Hafnarfjarðar lögðu fram fyrirspurn á fundi þess á mánudag þar sem spurt var um hvort einhver dæmi væru um það að börnum væri úthýst úr leikskólum bæjarins vegna vangoldinna leikskólagjalda. Einnig var spurt hvort einhverjum börnum hefði verið vísað af frístundaheimilum af sömu ástæðu.Adda María„Við höfum dæmi um þetta og þess vegna erum við að leggja þetta fram. Þetta er tímaskekkja og við þurfum að taka okkur saman í andlitinu og gera eitthvað í þessu,“ segir Adda María Jóhannsdóttir, fulltrúi Samfylkingar í fræðsluráði Hafnarfjarðarbæjar. Magnús Baldursson, fræðslustjóri Hafnarfjarðarbæjar, staðfestir að upp hafi komið dæmi þar sem barn hafi misst pláss af þessum ástæðum en það sé mjög sjaldgæft. „Þetta hefur gerst en er ekki algengt. Við miðum við þriggja mánaða skuld án þess að það sé samið um greiðslur.“ Hann segir alltaf reynt að semja um greiðslur skuldar áður en barnið missi plássið og dæmin séu ekki mörg. „Þetta er mjög sjaldgæft,“ segir Magnús. Adda María segist hafa lagt fram fyrirspurnina vegna þess að hún hafi heyrt dæmi um það að leikskólabörn hafi misst pláss sitt á leikskóla vegna vangoldinna leikskólagjalda. „Ég býst ekki við því að dæmin séu mörg en þetta á ekki að vera svona árið 2014. Þarna hljóta að vera einhverjar skýringar að baki og spurning hvort það sé eitthvert annað kerfi innan bæjarins sem eigi að taka á þessu svo það bitni ekki á börnunum. Nú ímyndar maður sér að þetta séu fjölskyldur sem eigi í fjárhagserfiðleikum og við erum með batterí til aðstoðar slíkum fjölskyldum. Við hljótum að þurfa að endurskoða eitthvað þessa verkferla,“ segir Adda María.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Fleiri fréttir Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Sjá meira