Innlent

Kvíðakast hvert sinn sem hreyfir vind

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Ástand hússins er vægast sagt skelfilegt og versnar stöðugt.
Ástand hússins er vægast sagt skelfilegt og versnar stöðugt.
„Þetta er eiginlega sjálfheldumál,“ segir Magnús Stefánsson, bæjarstjóri í Garði, um erfiða stöðu sveitarfélagsins gagnvart íbúðarhúsi sem er í niðurníðslu í plássinu.

Eins og fram kom í Fréttablaðinu á föstudag stendur nágrönnum íbúðarhússins Víkur í Garði verulegur stuggur af bágu ástandi hússins. Þakið er að hruni komið og fiskineti hefur verið brugðið yfir húsið til þess að freista þess að hindra að lausar þakplötur fjúki og slasi fólk og skemmi eigur þess.

Húsið er í eigu sextugs karls og fimmtugrar konu sem áður voru í sambúð. Konan er flutt úr húsinu en maðurinn býr þar enn og mun hafast við í einu kjallaraherberginu þar sem skjólið er mest fyrir veðri og vindum. Hann hefur ekki sinnt því að hindra skemmdirnar á húsinu eða koma því í betra horf.

Magnús Stefánsson
Magnús segir viðræður við eiganda hússins hafa staðið yfir að undanförnu. „Við höfum lagt að honum að gera úrbætur á húsinu. Eins og sést þá hefur það ekki borið mikinn árangur,“ segir hann.

Bæjarstjórinn segir að það eina sem sveitarfélagið geti gert sé að fara í formlegt ferli með málið þar sem eigandanum er gefinn frestur til úrbóta. „Að öðrum kosti láti sveitarfélagið gera það á hans kostnað og við erum að vinna í því að koma þessu ferli af stað,“ segir hann.

Fyrir meira en tveimur og hálfu ári, í mars 2012, sögðu Víkurfréttir frá því að Garður hefði boðað húseigandanum að lagðar yrðu á hann 30 þúsund króna dagsektir frá 1. júní það ár ef hann kæmi ekki skikki á húsið. Þeim var ekki beitt og Magnús kveðst ekki þekkja þá sögu því þetta hafi verið fyrir hans tíð sem bæjarstjóri.

„Við höfum þetta dagsektaúrræði en mér skilst að við getum gefið honum frest og síðan gripið inn í málið með einhverjum hætti á hans kostnað,“ segir Magnús sem kveður nú skoðað hjá bænum hvernig betur megi tryggja húsið þar til framtíðarlausn finnst.

Magnús undirstrikar að málið sé ekki einfalt því réttur eigandans sé mikill og huga þurfi að kostnaðarhliðinni. Bæjarstarfsmenn séu sendir reglulega að húsinu til að fylgjast með. „Maður fær eiginlega kvíðakast í hvert sinn sem hreyfir vind. Það þarf að afstýra þeirri hættu sem stafar af þessu og við erum að vinna að ákveðinni lausn sem við vonumst til að ná í samvinnu við eigandann,“ segir bæjarstjórinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×