Íhuga að geisla vatnið eftir bakteríumengun 15. desember 2014 07:00 Vatnsból Vogabúa er í Vogavík sem er hægra megin við byggðina á myndinni. Mynd/Vogar-oddgeir Karlsson „
Það veit enginn hvers vegna mengunin barst í vatnsbólið,“ segir Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri Voga, um bakteríumengun sem uppgötvaðist í neysluvatni sveitarfélagsins í byrjun september. Um var að ræða coli-gerlamengun sem kom fram við reglubundna skoðun heilbrigðiseftirlitsins í grunnskólanum í Vogum. Mengunin var rakin til vatnsbóls HS veitna í Vogavík. Í framhaldinu var íbúum ráðlagt að sjóða allt neysluvatn. Nokkrum dögum síðar hvarf mengunin og tilmælunum var þá fljótlega aflétt.Ásgeir Eiríksson„Dagana á undan rigndi hressilega og líklegasta skýringin að mati heilbrigðiseftirlitsins er að jörðin hafi ekki haft undan að taka við vatninu og þá hafi húsdýraáburður eins og hrossatað blandast vatni sem síðan seig niður í grunnvatnið. En það er ekki nokkur einasta leið að finna út úr því,“ segir bæjarstjórinn. Engum varð meint af mengaða vatninu í september. Ásgeir segir að núverandi borhola í vatnsbóli HS veitna í Vogavík hafi verið tekin í notkun árið 2008. Hann viti ekki til þess að viðlíka mengun hafi komið upp áður. Samkvæmt aðalskipulagi Voga er gert ráð fyrir að nýtt vatnsból verði tekið í notkun eftir árið 2018. Í öryggisskyni verði það í heiðinni ofan Reykjanesbrautar en ekki niðri við sjó eins og núverandi borhola sem er í Vogavík á athafnasvæði fiskvinnslufyrirtækisins Stofnfisks. Sveitarfélagið hefur óskað eftir því að framkvæmdum við nýtt vatnsból verði flýtt en HS veitur segja það ekki á dagskrá og ekki rúmast í fjárfestingaráætlun fyrirtækisins. Kostnaðurinn mun hlaupa á hundruðum milljóna króna. Rætt er um að geisla vatnið í Vogavík í varúðarskyni áður en því er hleypt inn á veitukerfi sveitarfélagsins. „Við höfum velt upp öllum flötum á málinu. Þetta er þá hugsað sem forvörn. Það sem einu sinni hefur gerst getur gerst aftur,“ segir Ásgeir. „Ef svo ólíklega vill til að það komi aftur upp bakteríumengun við dæluna þá myndi geislunin í raun og veru vinna á henni.“ Að sögn Ásgeirs er geislun þekkt aðferð sem notuð er annars staðar. „Þetta er ekki flókið ferli og hefur engin áhrif á vatnið en er fyrst og fremst varúðarráðstöfun.“
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Fleiri fréttir Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Sjá meira