Dómsniðurstaða EFTA sigur fyrir WOW Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 11. desember 2014 09:15 Lögmaður WOW air segir félagið vera í miklu betri stöðu núna en fyrir niðurstöðu EFTA-dómstólsins. Fréttablaðið/Kristín María Sigþórsdóttir
EFTA-dómstóllinn staðfesti í gær heimild samkeppnisyfirvalda til að grípa til aðgerða í tilefni af samkeppnishindrunum sem leiða af úthlutun afgreiðslutíma á flugvöllum með skammtaðan afgreiðslutíma. Aðdragandi málsins var sá að WOW air kvartaði til Samkeppniseftirlitsins yfir fyrirkomulagi við úthlutun afgreiðslutíma á Keflavíkurflugvelli. Athugun Samkeppniseftirlitsins leiddi í ljós að fyrirkomulagið hafði skaðleg áhrif á samkeppni og hindraði komu nýrra aðila inn á markaðinn fyrir áætlunarflug frá Íslandi. Málinu var áfrýjað til áfrýjunarnefndar samkeppnismála sem komst að öndverðri niðurstöðu og endaði málið því hjá dómstólum. Héraðsdómur ákvað að leita ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins og ákvað dómstóllinn að málið sætti flýtimeðferð.Páll Rúnar M. KristjánssonÍ dómi EFTA er staðfest að samkeppnisyfirvöld geta haft afskipti af samkeppnishindrunum sem leiða af úthlutun afgreiðslutíma. Því er slegið föstu að svonefndur hefðarréttur á afgreiðslutímum komi ekki í veg fyrir íhlutun samkeppnisyfirvalda. Á grundvelli hefðarréttar hafa flugfélög sem áður nutu mikilla forréttinda ráðið yfir mikilvægustu afgreiðslutímunum. „Þetta er stór sigur fyrir WOW air. EFTA-dómstóllinn er skýr, Samkeppniseftirlitið hefur ótakmarkaðar almennar heimildir til íhlutunar gagnvart Icelandair vegna þessara afgreiðslutíma. Það þýðir að WOW er í miklu betri stöðu núna en fyrir niðurstöðuna,“ segir Páll Rúnar M. Kristjánsson, lögmaður WOW air.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Erlent Fleiri fréttir Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Sjá meira