Innlent

Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu fær falleinkunn- 2,5 af 10

Kristjana Guðbrandsdóttir skrifar
Læknar hafa boðað til fjögurra daga verkfallslotna eftir áramót.
Læknar hafa boðað til fjögurra daga verkfallslotna eftir áramót. Vísir/Ernir
Síðustu verkfallslotu fyrir jól lýkur fimmtudaginn, 11. desember. Verkfall lækna hefur haft víðtæk áhrif á rekstur spítala og heilsugæslustöðva landsins. Nú hefur rúmlega 700 aðgerðum verið frestað, 500 skurðaðgerðum og um 200 sértækum aðgerðum. Yfir tvö þúsund dag- og göngudeildarkomum hefur verið frestað og heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu fær falleinkunn í athugun á þjónustu hennar.



Frá þessu segir Leifur Bárðarson, starfandi landlæknir, og óttast mjög um framhaldið enda hafa verið boðaðar harðar aðgerðir eftir áramót þar sem farið verður í fjögurra daga verkfallslotur. Þær verkfallsaðgerðir munu gera það að verkum að aðeins verður opið á skurðstofum á föstudögum. Leifur ítrekar þó að engin alvarleg atvik hafi komið upp vegna verkfallsins, aðeins uppákomur sem fela í sér truflun og óþægindi fyrir sjúklinga. „Við höfum aðeins skráð hjá okkur uppákomur sem teljast ekki alvarlegar, það hafa sum sé engin alvarleg atvik verið skráð enda sinna læknar ávallt bráðaþjónustu.“ 

Leifur Bárðarson segir uppsafnaðan vanda Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu valda sér áhyggjum.Vísir/ aðsent
Leifur segist halda að margir bíði með að leita sér þjónustu vegna verkfalls lækna. Landlæknisembættið notast við einkunnakerfi til að fylgjast með frávikum í þjónustu til sjúkra. Í nýlegri könnun fær Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins falleinkunn, eða 2,5 af 10. „Það er áhyggjuefni, áhrifin eru meiri á höfuðborgarsvæðinu þar sem margir sækja þjónustu. Uppsafnaður vandi heilsugæslunnar er nokkuð sem þarf að kljást við í náinni framtíð.“

Á mánudag tilkynntu 200 læknanemar Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra að þeir myndu ekki koma til starfa.

Ólafur Baldursson, framkvæmdastjóri lækninga, segir aðgerðir læknanema hafa mjög neikvæð áhrif til lengri tíma. „Það er alvarlegt fyrir spítalann ef unga fólkið vill ekki ráða sig hér til vinnu.

Það er óásættanlegt fyrir spítalann í lengri tíma að geta ekki verið vinsæll vinnustaður meðal unga fólksins. Við vonum að deiluaðilar, ríkisvaldið og læknar, nái saman í þessu máli,“ segir hann um langtímaáhrif en nefnir að strax í sumarbyrjun muni verða miklar truflanir á starfi spítalanna komi læknakandídatar ekki til starfa eins og vant er.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×