Innlent

Boða hertar verkfallsaðgerðir á nýju ári

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Verkfallslotur á nýju ári munu standa í fjóra daga.
Verkfallslotur á nýju ári munu standa í fjóra daga. vísir/ernir
Læknar samþykktu í gærkvöld auknar verkfallsaðgerðir á komandi ári. Verkfallsloturnar á nýju ári munu standa í fjóra daga í stað tveggja. Kosning um aðgerðirnar hafði staðið undanfarna viku. Fyrsta lotan mun hefjast þann 5. janúar. 98 prósent þeirra sem greiddu atkvæði samþykktu verkfallið en 85 prósent félagsmanna tók þátt.

„Það þarf að boða til verkfalls með ákveðnum fyrirvara og það er ekkert sem bendir til að samningar séu í nánd,“ segir Þorbjörn Jónsson, formaður Læknafélags Íslands. Hann segir jafnframt að ekkert heildstætt tilboð hafi borist frá ríkinu.

„Margir hafa verið að hugsa sinn gang hvar framtíð þeirra liggur, hvort hún sé hér á landi eða annars staðar. Það er stór ákvörðun að segja starfi sínu lausu og flytjast búferlum með fjölskyldu sína og menn gera það ekki fyrr en allt annað hefur þrotið. Það er vonandi að það komi ekki til þess,“ segir Þorbjörn einnig.

Ríflega tvö hundruð læknanemar lýstu því yfir í gær að þeir myndu ekki ráða sig sem kandídata eða aðstoðarlækna á heilbrigðisstofnanir landsins fyrr en sátt hefði náðst í deilunni. Umsóknarfrestur um kandídatsstöður rann út 24. nóvember en var framlengdur sökum fárra umsókna. Læknanemar hafa mannað um 75 stöðugildi undanfarin sumur.

Samninganefndir deiluaðilanna funduðu í gær án árangurs. Fundurinn stóð yfir í klukkustund og hefur verið boðað til nýs fundar á morgun. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur læknum verið boðin um tíu prósenta launahækkun en Sigurveig Pétursdóttir, formaður samninganefndar lækna, segir tilboð ríkisins hljóða upp á minni hækkun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×