Sjómenn fá ekki sex tíma hvíld Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar 6. desember 2014 07:30 Sjómenn hafa verið án kjarasamninga í fjögur ár og útvegsmönnum hefur þótt lítið tilefni til þess að setjast að samningaborðinu segir Valmundur Valmundsson. Fréttablaðið/Ernir „
Vinnuálagið er orðið óeðlilega mikið,“ segir nýr formaður Sjómannasambands Íslands, Valmundur Valmundsson. Óviðunandi aðstæður sjómanna voru ræddar á þingi Sjómannasambands Íslands sem sett var á fimmtudag, þar á meðal ónóg hvíld sjómanna. „Hvíldarákvæði kjarasamninga eru brotin, við fréttum af því oftar en áður að sjómenn fái ekki þá sex tíma samfleyttu hvíld sem þeim er tryggð samkvæmt lögum,“ segir Valmundur. Hann segir mannfæð um að kenna og hefur miklar áhyggjur af aukinni slysahættu. „Það er okkar mat að slysahætta eykst og það er mikið áhyggjuefni. Ef hvíldina vantar þá býður það hættunni heim.“ Valmundur tekur við af Sævari Gunnarssyni sem hefur verið formaður Sjómannasambandsins í 20 ár. Hann stundaði sjómennsku í 33 ár en lét af henni fyrir fjórum árum. Áður var Valmundur formaður Sjómannafélagsins Jötuns í Vestmannaeyjum. Hann segir sjómenn langþreytta á aðstæðum sínum, þá helst vinnuálagi og fámenni á sumum fiskiskipum. Þeir hafi verið án kjarasamnings í fjögur ár. „Það hefur bitnað á okkur að enn hefur ekki verið lagt fram nýtt frumvarp um stjórn fiskveiða. Það hefur ekki verið vilji til að ræða við okkur um kjör um langa hríð vegna breytinga í útgerðinni. Það er fráleitt því það er um margt annað að semja,“ segir Valmundur.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Sjá meira