Útvarpsgjaldið skert sex sinnum á síðustu tíu árum Haraldur Guðmundsson skrifar 5. desember 2014 07:00 Mikið hefur verið deilt um fyrirhugaða lækkun á útvarpsgjaldinu úr 19.400 krónum í 17.800 krónur. Vísir/GVA
RÚV fékk í sex ár af síðustu tíu minna úr ríkissjóði en innheimtist vegna afnota- eða útvarpsgjalds. Árið 2013 var gjaldið skert um 576 milljónir króna en fjórum árum áður fékk stofnunin 1,2 milljörðum meira en gert hafði verið ráð fyrir. Þetta kemur fram í ríkisreikningum áranna 2005-2013 og áætlun fjárlaga árin 2014 og 2015. Tölurnar þar sýna að tekjur ríkisins af útvarpsgjaldinu voru minni en útgjöld vegna RÚV á árunum 2006-2009 þegar afskriftir á skuldum stofnunarinnar við ríkissjóð eru teknar með. Árið 2010 snerist dæmið við og þá fór stofnunin að fá minna í framlög frá ríkinu en fékkst fyrir innheimtu útvarpsgjaldsins.Guðlaugur Þór Þórðarson„Sú fullyrðing að RÚV hafi aldrei fengið samsvarandi framlög og sem nemur tekjum útvarpsgjalds stenst því ekki,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokks og varaformaður fjárlaganefndar. „Sem dæmi þá var RÚV að fá 27 milljónum meira yfir allt tímabilið heldur en fékkst af útvarpsgjaldinu. Þessar tölur sýna því að síendurteknar yfirlýsingar, um að framlög skattgreiðenda til RÚV séu ekki í samræmi við það sem tekið er af útvarpsgjaldinu, eru ekki réttar,“ segir Guðlaugur. Hann segir augljóst að RÚV eigi við útgjaldavanda að ræða og að stofnunin þurfi að fara að sníða sér stakk eftir vexti.Katrín JakobsdóttirKatrín Jakobsdóttir, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi menntamálaráðherra, segir Guðlaug bera í þessu máli saman epli og appelsínur. „Útvarpsgjaldinu var breytt á þessu tímabili og því tel ég varla hægt að bera þetta saman eins og hann gerir. Í öðru lagi er verið að rugla saman gjöldum til rekstrar og því sem hefur verið lagt inn í stofnunina til að bæta eigin fé hennar sem tengist þá efnahagsreikningnum og skuldastöðunni, og hún er auðvitað ekki góð,“ segir Katrín og heldur áfram: „Mér finnst þetta því ekki boðlegur samanburður og ég held að svona talnaleikfimi þjóni ekki öðrum tilgangi en að reyna að varpa ákveðnum reyk yfir umræðuna. Eftir að RÚV var breytt í opinbert hlutafélag árið 2007, og útvarpsgjaldið tekið upp, þá hefur Ríkisútvarpið ekki fengið þá upphæð sem gjaldið átti að skila stofnuninni.“
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Fleiri fréttir Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Sjá meira