Lagarfljótsormurinn fastur á strandstað Garðar Örn Úlfarsson skrifar 4. desember 2014 07:00 Lagarfljótsormurinn er 48 metra langur og tekur 110 manns í sæti. Skipið hóf siglingar á Lagarfljóti sumarið 1999. „
Ég átti nú von á að þeir myndu nú að minnsta kosti vilja ræða við mig,“ segir Hlynur Bragason rútubílstjóri sem fær ekki heimild bæjaryfirvalda til að gera skipið Lagarfljótsorminn að veitingastað á Egilsstöðum. Núverandi eigandi Lagarfljótsormsins er Sævar Jónsson í vélsmiðjunni Stálstjörnunni á Seyðisfirði, sem eignaðist skipið eftir að rekstur þess komst í þrot síðast. Lagarfljótsormurinn fór fyrst á flot eystra sumarið 1999. Frá árinu 2011 hefur skipið verið uppi á landi ofan við Lagarfljótsbrúna. Sævar segist hafa ætlað að koma skipinu á flot aftur og verið kominn með öll leyfi en það hafi þá reynst skemmt.Bankinn sagðist hafa tapað nóg „Ég hafði ekki bolmagn til að klára það og minn banki sagðist þegar hafa tapað nógu á þessu apparati. Ég ákvað þá að finna einhvern annan til að taka við keflinu,“ segir Sævar. Hlynur Bragason er einn þeirra sem sýndu Lagarfljótsorminum áhuga. Hann spurðist fyrir um það hjá bæjaryfirvöldum Fljótsdalshéraðs hvort hann gæti fengið lóð fyrir skipið í miðbæ Egilsstaða. Því hefur verið hafnað með vísun í skipulagslög. „Meðlimir umhverfis- og framkvæmdanefndar voru að minnsta kosti ekki tilbúnir að samþykkja þetta erindi eins og það var lagt upp,“ segir Björn Ingimarsson bæjarstjóri. „Ég á frekar von á að skipið verði fært, það er bara spurning hvert. En víst væri gaman ef það færi aftur á flot.“Veitingastaður fyrir eiginkonuna Rekstur Lagarfljótsormsins hefur aldrei gengið vel frá því hann hóf siglingar á fljótinu. Hlynur Bragason segist telja útséð með að reksturinn á fljótinu gangi. Sjálfur rekur hann rútubílafyrirtæki. „Mér datt í hug að þetta gæti verið heppilegt fyrir konuna mína en þeir blésu þetta bara út af borðinu,“ segir hann. Sævar segir að við sölu á skipinu hafi hann lagt áherslu á að það færi ekki úr héraðinu. Úr því Hlynur fái ekki undirtektir við sinni hugmynd geti það nú breyst enda hafi hann fengið tilboð frá aðila sem vilji fara með skipið af svæðinu. „Ég hélt að það væri meiri áhugi á Héraði fyrir Lagarfljótsorminum,“ segir Sævar Jónsson.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Sjá meira