Rætt við ráðherra um vatnshæð Lagarfljóts Garðar Örn Úlfarsson skrifar 1. desember 2014 09:00 Lagarfossvirkjun Framkvæmdir við stækkun Lagarfossvirkjunar á árinu 2007. Mynd/Rarik „
Landeigendur hafa gert athugasemdir og okkur finnst viðbrögðin við þessu hafa verið harla lítil,“ segir Björn Ingimarsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs, sem reynir nú að ná fundi innanríkisráðherra vegna hárrar vatnsstöðu í Lagarfljóti. Björn segir að vegna hárrar vatnsstöðu sé talsvert landbrot við bakka Lagarfljóts, sérstaklega neðan Egilsstaða. Fljótsdalshérað er ekki sátt við afstöðu Orkustofnunar til virkjunarleyfis Lagarfossvirkjunar og leitaði umsagnar Skipulagsstofnunar sem benti á að Orkustofnun heyri undir iðnaðarráðherra. Skipulagsstofnun benti „þó á að í matsskylduumfjöllun var miðað við 20 metra vatnshæð og í gildandi deiliskipulagi er vatnshæð Lagarfljóts í aðrennslisskurði og ofan stíflu 20 metrar yfir sjávarmáli.“Björn Ingimarsson Bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs.Mynd/Gunnar Gunnarsson.Að sögn Björns er deilt um eftirlit með lokum í Lagarfossvirkjun og hvort miða eigi við vatnshæð við Lagarfljótsbrú eins og kveðið sé á um hana í eldra virkjunarleyfi. „Það er afstaða Orkustofnunar að þessi viðmið eigi við um Lagarfossvirkjun en ekki Lagarfljótsbrúna. Tuttugu metra vatnshæð við virkjunina getur þýtt 21 metra við Lagarfljótsbrú. Það er það sem stendur svolítill styr um,“ segir Björn og útskýrir að eftir því sem vatnshæðin sé meiri við Lagarfljótsbrú aukist landrof þar. „Það fjölgar þeim tilfellum sem túnin og landið á þessu svæði hverfur allt undir vatn með tilheyrandi landskemmdum.“ Björn segir landeigendur hafa gert athugasemdir. „Okkur finnst viðbrögðin við þessu hafa verið harla lítil,“ segir bæjarstjórinn sem tekur þó fram að Landsvirkjun fyrir sitt leyti sé mjög meðvituð um að bregðast þurfi við landbrotinu og hafi kortlagt til að meta hvernig best verði brugðist við. Lokurnar sem stjórna vatnsrennslinu í gegn um Lagarfossvirkjun eru handstýrðar. Bæjaryfirvöld vilja að lokurnar verði sjálfvirkar. „Spurningin er um skráningu. Við viljum að lokurnar séu rafstýrðar en ekki handstýrðar þannig að hægt sé að sýna fram á hvenær þær eru opnar og hvenær lokaðar,“ segir Björn. Aðspurður segir bæjarstjórinn vissulega ekki alltaf hægt að koma í veg fyrir háa vatnsstöðu. Það sé til dæmis tilfellið í leysingum. „En málið snýst um að menn reyni að lágmarka þetta með því að hafa lokurnar uppi.“
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Fleiri fréttir Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Sjá meira