Getur breytt stöðu þúsunda barna Jón Hákon Halldórsson skrifar 6. nóvember 2014 07:00 Karl Garðarsson telur mikilvægt að aðgengi að sálfræðimeðferð fyrir börn, unglinga og fjölskyldur þeirra verði bætt. fréttablaðið/vilhelm
Könnun sem gerð var í Breiðholti sýndi að árið 2012 mældust 26 prósent stúlkna með kvíða. Kvíðinn mældist einnig mikill hjá piltum, en með markvissu inngripi var hægt að draga úr kvíðanum. Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, greindi frá þessu á Alþingi í gær þegar hann mælti fyrir tillögu um aðgerðaráætlun um geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn. Tillagan felur í sér að geðheilbrigðisþjónusta og aðgengi að sálfræðimeðferð fyrir börn, unglinga og fjölskyldur þeirra verði bætt. Meðal annars með auknu aðgengi að hugrænni meðferð og námskeiðum í foreldrafærni á borð við PMT og SOS.Karl GarðarssonKarl telur að þessi áætlun sé mjög raunhæf. „Vegna þess að þetta hefur verið prófað áður í Breiðholtinu,“ segir Karl og þar hafi tekist að draga úr kvíða og þunglyndi á meðal barna. „Að gera svona á landsvísu, að leggja svona próf fyrir og bjóða þjónustu sem er ekki fyrir hendi núna nema í mjög takmörkuðum mæli myndi gjörbreyta stöðunni hjá þúsundum barna,“ segir Karl. Hvorki heilbrigðisráðherra né velferðarráðherra tóku þátt í umræðunni þegar Karl flutti tillögu sína á Alþingi í gær. En Karl segist hafa rætt málin við Eygló og fengið jákvæð viðbrögð. Frá árinu 2013 hefur Barnaverndarstofa staðið að þjálfun PMT-meðferðaraðila um land allt. Þeir meðferðaraðilar sjá svo um handleiðslu og stuðning fyrir fagfólk sem vinnur með börnum og fjölskyldum þeirra víða um land. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er framhald á því verkefni í uppnámi vegna þessa að fjárveitingar skortir. Aðspurður viðurkennir Karl að það séu ekki til fjárveitingar til að ýta þessari aðgerðaráætlun úr vör. „En tilgangur tillögunnar er sá að það verði sett á laggirnar nefnd sem skili tillögum á næsta ári og síðan verður í framhaldinu að finna framlög til að fylgja þessu máli eftir,“ segir Karl. Sú vinna muni skila sér margfalt til framtíðar.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira