Fornminjar berskjaldaðar á Þingvöllum Garðar Örn Úlfarsson skrifar 3. nóvember 2014 07:00 Kantsteinar úr hinum forna Kóngsvegi komu upp úr kafinu við lagfæringar á stígnum að Peningagjá á Þingvöllum. Mynd/Einar Á.P. Sæmundsen „
Þetta er eiginlega ekki hægt eins og þetta er,“ segir Uggi Ævarsson, minjavörður Suðurlands, um ástand fornminja á Þingvöllum. Eins og fram kom í Fréttablaðinu 25. október síðastliðinn uppgötvuðust steinhleðslur úr svokölluðum Kóngsvegi við lagfæringar á veginum að Peningagjá á Þingvöllum. Kóngsvegur var byggður á árunum 1906 og 1907 og liggur meðal annars framhjá Laugarvatni og að Geysi. Uggi Ævarsson segir minjar um hann sjást á stöku stað. „En þetta er óðum að hverfa og það er gaman að hafa sýnishorn af honum á Þingvöllum, einmitt á þessum stað,“ segir Uggi og minnir á að til sé ljósmynd sem sýnir Friðrik VIII Danakonung ríðandi í beygjunni við brúna. Uggi var ásamt landslagsarkitekt og fleirum við Peningagjá á fimmtudag og þar hafi menn komist á rekspöl með að finna út úr því hvernig hægt sé að ganga frá veginum þannig að kantsteinarnir séu sýnilegir.Svífi yfir stígnum „Hugmyndin er að hafa járnrist eða plötu sem svífur yfir stígnum þannig að hægt verði að sjá kantsteinana til beggja handa. Þá er eins og maður sé að gangi eftir stígnum án þess að raska honum,“ lýsir Uggi mögulegri útfærslu. „Þetta er vandmeðfarið en það er alveg á hreinu að þessu verður ekki mokað í burtu enda líta þjóðgarðsmenn á þennan fund jákvæðum augum,“ segir Uggi. Í tengslum við fréttir af hleðslunum sé komin fram dagbókarfærsla manns sem vann við Kóngsveg á þessum stað haustið 1906. Það varpi skemmtilegu ljósi á söguna. Uggi undirstrikar að ágangur ferðamanna sé vandamál víða á Þingvöllum og áhyggjuefni.Tóftir berskjaldaðar fyrir ferðamönnum „Það er mikill ágangur á Spönginni sjálfri og spurning um að loka þar í einhvern afmarkaðan tíma. Það er þjóðgarðsins að ákveða það en við vildum gjarnan mælast til þess vegna tófta sem eru þar. Tóftirnar eru sokknar og ógreinilegar og fólk gengur yfir þær,“ segir Uggi sem kveður minjavernd á Þingvöllum hafa verið frekar passífa. „Menn hafa ekki viljað setja upp miklar girðingar og kaðla en hafa frekar reynt að láta stíga stýra umferðinni,“ segir Uggi. Það hafi ekki haft tilætluð áhrif nema að vissu marki. „En núna má segja að það sé vakning og við ætlum að taka höndum saman meira; við á Minjastofnun og þjóðgarðurinn,“ segir Uggi. Það sé ekki síst vegna umsóknar um að Þingvellir fari á heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna vegna menningarminja frá víkingaöld. „Þannig að við ætlum að gera gangskör í þessum málum á Þingvöllum.“
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira