Þingmaður spyr ráðherra um opnun sendibréfa Garðar Örn Úlfarsson skrifar 31. október 2014 07:00 Birgitta Jónsdóttir segir ekki síst mikilvægt í ljósi samantektar lögreglu um mótmæli að varpa ljósi á opnun stjórnvalda á sendibréfum almennings. Fréttablaðið/Stefán „
Það er alls konar fólk sem er að lenda í að það er alltaf verið að gramsa í sendibréfum þess,“ segir Birgitta Jónsdóttir Pírati sem lagt hefur fram fyrirspurn á Alþingi til fjármálaráðherra um opnun sendibréfa. Birgitta kveðst fá mikinn póst að utan og iðulega lenda í því að hann hafi verið opnaður áður en hann berst til hennar. Svipað gildi um son hennar. Birgitta nefnir sem dæmi konu frá Bandaríkjunum sem hafi haft við hana samband. „Hennar bréf eru alltaf opnuð. Hún hefur engin fíkniefnatengsl eða þvíumlíkt – það eru engar skýringar.“Birgitta Jónsdóttir telur Tollinn ganga of langt í að opna póstsendingar.Fréttablaðið/GVAEngin svör hjá Tollinum Fyrirspurn Birgittu er lögð fyrir fjármála- og efnahagsráðherra. Meðal annars er spurt hversu oft á árunum 2005 til 2013 stjórnvöld eða einhver í þeirra umboði hafi opnað sendibréf til og frá Íslandi og bréf sem send eru innanlands án þess að það hafi verið hluti af rannsókn sakamáls og í hversu mörgum af þeim tilfellum var beðið um dómsúrskurð fyrir opnuninni. „Telur ráðherra að það verklag sem viðhaft er við opnun bréfasendinga uppfylli kröfur 71. gr. stjórnarskrárinnar um friðhelgi einkalífs?“ er lokaspurningin í fyrirspurn Birgittu. „Maður fær engin svör ef maður spyr Tollinn,“ segir Birgitta sem kveður alls kyns sendingar til sín vera opnaðar, jafnvel þótt þær séu augljóslega ekki í gegnum söluvefi á borð við Amazon. Þessu fylgi óþægindi. „Maður þarf að gefa þeim heimild til að opna til að leita að reikningi. Ég er búin að gera sjálfvirkt bréf, sem ég sendi alltaf, um að þeir megi opna allan póstinn minn. Þetta er náttúrlega fáránlegt.“Eins og þeir megi opna allt Birgitta undirstrikar að það sé hins vegar ekki sjálfrar hennar vegna sem hún setur fyrirspurnina fram. „Ég veit að margir mótmælendur og aðgerðasinnar hafa upplifað þetta áður en fólk fór að kaupa svona mikið í gegnum Amazon og Ali Express. Mér fannst þeir ganga mjög langt eftir að fólk fór að kaupa af Amazon. Þá var eins og það væri í lagi að opna allt,“ segir þingmaðurinn. Málið segir Birgitta skipta sérstaklega miklu eftir að samantekt um aðgerðir lögreglunnar við mótmæli á hrunárunum var opinberuð. „Það er ótrúleg lesning vegna þess hversu langt er gengið í að leggja sumt fólk í einelti. Það er eins og hægt sé að afnema öll borgaraleg réttindi fólks út af stjórnmálaskoðunum eða vegna þess hvernig það lítur út.“
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira