„Erfitt að sjá fullorðna og börn deyja í massavís“ Viktoría Hermannsdóttir skrifar 31. október 2014 07:00 Magna er nú í stuttu stoppi á Íslandi þar sem hún heldur námskeið fyrir heilbrigðisstarfsfólk. Vísir/Valli
Magna Björk Ólafsdóttir hefur starfað á vegum Rauða krossins á Íslandi í alþjóðlegu teymi sem vinnur gegn útbreiðslu ebólufaraldursins í Síerra Leóne. Hún er nú í stuttu stoppi á Íslandi þar sem hún heldur námskeið fyrir viðbragðsteymi Landspítalans vegna ebólu. Í Síerra Leóne vann hún við fræðslu til þess að reyna að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu faraldursins. Ebólufaraldurinn sem geisar nú í Vestur-Afríku er talinn sá stærsti hingað til og erfitt hefur reynst að koma í veg fyrir smit. Magna var í eldlínunni og segir ástandið slæmt en er sannfærð um að það geti náðst að stoppa faraldurinn sé rétt staðið að. Neyðin sé mikil og sjálfboðaliðar rekist á marga veggi í starfi sínu. Fólk sé oft hrætt við sjálfboðaliðana og afneitun vegna sjúkdómsins sé mikil. „Þarna kemur þetta upp á þessu strjálbýla svæði þar sem fólk þekkir ekki sjúkdóminn og er í vissri afneitun fyrir honum. Við brugðumst líka ansi seint við, þetta komst á gott skrið áður en alþjóðleg aðstoð tók að berast. Það er gerlegt að stoppa þetta. Við þurfum bara gífurlega mikið af hjálparstarfsmönnum og peningum. Það þarf meiri peninga og líka góða stjórnun yfir þessu öllu saman.“ Hún hefur horft upp á marga lúta í lægra haldi fyrir sjúkdómnum og segir það vissulega erfitt þótt hún sé búin að koma sér upp sterkum skráp. „Dauðinn er aldrei skemmtilegur. Það er mjög erfitt að sjá fullorðna og börn deyja í massavís. En þetta er vinna og á ákveðnum tímapunkti verður þú að líta á þetta sem vinnu til þess að ná ákveðnum markmiðum. Ef þú gerir það ekki þá ertu bara heima grátandi upp í herbergi og það er ekkert gagn að þér,“ segir Magna. Undanfarna mánuði eða frá því hún kom frá Síerra Leóne þá hefur hún starfað í Sviss þar sem hún hefur umsjón með námskeiðum fyrir sendiboða á leið til starfa. „Ég var kölluð heim vegna þess að hlutirnir voru mjög óráðnir hérna á Íslandi og ekki aðstaða til þess að taka við mér ef ég myndi smitast. Þá fór ég til Sviss til að vera þar í 21 dag sem er meðgöngutíminn þar til sjúkdómurinn kemur fram. Í kjölfarið fór ég í þjálfun hjá Læknum án landamæra í Belgíu og svo þróaðist það út í það að þörfin fyrir þjálfun var mikil, ég var á staðnum og fór að sinna henni.“ Magna hefur frá árinu 2010 verið víða um heim í hjálparstarfi. Meðal annars á Haítí, Kenýa og Írak. Hún segist sjaldan óttast aðstæður eða að eitthvað komi fyrir sig enda gefist ekki tími í það þar sem neyðin sé svo mikil. „Ég hafði ekki tíma til þess að vera hrædd. Það komu alveg stundir, sérstaklega í enda dags þegar maður var kominn í ró að þá poppaði upp í höfðinu á mér hvort ég hefði nokkuð gleymt að þvo mér í klór eftir daginn, hvort ég hefði gert einhver mistök. Það er algengt að fólk leggist upp í rúm á kvöldin og reki slóðina yfir daginn,“ segir hún. Fjölskylda Mögnu er heima á Íslandi og segir hún að þótt þau óttist vissulega um hana þá virði þau störf hennar. „Þau eru alltaf hrædd um mig þegar ég fer en þau eru ótrúlega stuðningsrík og virða það að þetta er það sem ég vil. Ég held að það sé oft erfiðara fyrir þau en mig. Þau sitja eftir og hlusta á fréttir á meðan ég sé hvernig þetta er í raunveruleikanum. En ég reyni að vera dugleg að láta þau vita af mér.“ Magna heldur aftur til Sviss eftir helgi þar sem hún heldur áfram að kenna á námskeiðum. Hún vonast þó eftir að geta farið aftur út. „Þar er þörfin mest,“ segir hún og er staðráðin í að halda áfram í hjálparstarfi. „Þetta er það sem drífur mig áfram og það sem ég vil gera.“
Mest lesið Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Innlent Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Innlent Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Innlent Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Innlent Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Erlent Fleiri fréttir Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Sjá meira