Lítil endurnýjun í hópi sjúkraliða Jóhanna Margrét Einarsdóttir skrifar 29. október 2014 07:00 Um þrjátíu prósent þeirra sem starfa á stofnunum fyrir aldraða eru ófagmenntaðir. Sjúkraliðar fást ekki til starfa, stéttin eldist hratt og lítil endurnýjun er hópi þeirra. Fréttablaðið/pjetur
Meðalaldur sjúkraliða er um 52 ár og fer ört hækkandi. Á þessu ári hafa 118 sjúkraliðar fengið starfsleyfi en menn telja að þeir þyrftu að vera margfalt fleiri til að manna lausar stöður sjúkraliða og koma í stað þeirra sem fara á eftirlaun. Raunar hafa heldur fleiri starfsleyfi verið gefin út í ár en í fyrra þegar þau voru 97. „Sjúkraliðar eru að eldast. Þó að ungt fólk fái útgefin starfsleyfi sem sjúkraliði skilar það sér ekki inn á sjúkrastofnanirnar. Þeir ungu fara í önnur störf og töluvert margir hafa haldið til Noregs og starfa þar,“ segir Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður Sjúkraliðafélags Íslands.Kristín Á. guðmundsdóttirÞað vantar sjúkraliða sem eru yngri en 30, raunar má segja að það vanti heilu kynslóðirnar inn á sjúkrastofnanir sem menn telja afar slæmt því það sé unga fólkið sem komi með nýja þekkingu og ný viðhorf. Talið er að það verði erfitt og kannski ógerningur að snúa þessari þróun við og fá yngra fólk til starfa. Kristín segir að þetta vandamál sé ekki nýtt af nálinni. Það hafi verið viðvarandi í mörg ár. Hún segir erfitt að hvetja fólk til að læra fagið á meðan laun og starfskjör séu jafn bágborin og raun ber vitni. „Það er gríðarlegt álag í þessu starfi. Í sparnaðarskyni eru menn líka stöðugt að minnka starfshlutfall sjúkraliða og breyta vöktunum. Það er stöðugt verið að krefjast meira vinnuframlags,“ segir Kristín og bætir við að sjúkraliðar fari heim með það á tilfinningunni að þeir hafi ekki náð að sinna starfi sínu eins vel og þeir vilji. „Þetta veldur því að sjúkraliðar eru margir hverjir haldnir kvíðaröskun,“ segir Kristín. Hún segir að stórir hópar sjúkraliða séu komnir á örorku vegna álags í vinnu. „Sjúkraliðafélagið er innan vébanda BSRB. Þeir eiga aðild að sjúkrasjóði samtakanna. Ég tók þátt í því að úthluta úr sjóðnum í gær. Þrátt fyrir að sjúkraliðar séu fámennur hópur innan BSRB fengu þeir um helming þeirra styrkja sem var úthlutað,“ segir Kristín og bætir við að það segi ýmislegt um stöðuna.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira