Innlent

20 kennurum færra í menntaskólunum

Sveinn Arnarsson skrifar
Nemendaígildum fækkar um 1.608 milli fjárlagafrumvarpa 2014 og 2015.
Nemendaígildum fækkar um 1.608 milli fjárlagafrumvarpa 2014 og 2015. Fréttablaðið/Vilhelm
Kennurum við menntaskóla landsins mun að öllum líkindum fækka um 20, nái niðurskurður í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar í menntamálum fram að ganga. Nemendaígildum fækkar um 1.608 í fjárlagfrumvarpi ársins 2015 samanborið við fjárlagafrumvarpið 2014, og ekki verður greitt fyrir nemendur eldri en 25 ára. Formaður Félags framhaldsskólakennara er áhyggjufullur yfir niðurskurðinum.

„Það er augljóst að með þessum niðurskurðarhugmyndum ríkisstjórnarinnar í málefnum framhaldsskólanna mun kennurum við skólana fækka,“ segir Guðríður Arnardóttir, formaður Félags framhaldsskólakennara.

Guðríður Arnardóttir, formaður félags framhaldsskólakennara.
Sú breyting verður á starfsemi menntaskólanna að nemendum sem náð hafa 25 ára aldri verður ekki gert kleift að stunda nám við framhaldsskóla landsins. Nemendaígildum í menntaskólum landsins mun fækka um 1.608 milli fjárlagafrumvarpa. Það þýðir að um 20 færri menntaskólakennarar verða við störf á næsta skólaári.

Starfsgreinasamband Íslands er ósátt við fyrirhugaðar breytingar stjórnvalda. Í ályktun þess gagnrýnir sambandið breytingarnar sem „munu bitna af þunga á nemendum eldri en 25 ára. Sú hugmynd að fólk eldra en 25 ára sæki frekar inn í fullorðinsfræðsluna væri meira sannfærandi ef fjármagn fullorðinsfræðslunnar ykist í jöfnu hlutfalli. Svo er ekki og hættan er sú að nemendur eldri en 25 ára þurfi að greiða töluvert meira fyrir nám en áður.“

„Þegar maður skoðar skólana úti á landsbyggðinni, þar sem skólastjórnendur berjast við að halda tilætluðum fjölda nemenda í hverjum hóp, er einsýnt að þessar hugmyndir munu leggjast mun þyngra á þá skóla. Þannig getur þessi niðurskurður ýtt þeim skólum niður fyrir línuna og gert rekstrargrundvöll þeirra nærri óbærilegan,“ segir Guðríður.

Hún telur þessi áform ekki hafa verið nægilega kynnt félagi framhaldsskólakennara. Það vanti til að mynda að skýra fyrir félaginu hvaða áhrif þessi áform stjórnvalda eigi að hafa í för með sér. „Það þarf einnig að ræða þetta í samhengi við áform menntamálaráðherra um styttingu náms til stúdentsprófs. Við þurfum að fara að skoða það hversu hratt ráðherra ætlar að hrinda í framkvæmd þessari hugmynd um þriggja ára stúdentspróf. En það er alveg ljóst að starfsmönnum mun fækka við þessi áform.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×