Borga meira fyrir þjónustu í framtíðinni Jóhanna Margrét Einarsdóttir skrifar 28. október 2014 07:00 Pétur Magnússon „
Öldruðum kemur til með að fjölga um þrjú til fjögur prósent á hverju einasta ári næstu áratugina. Öldrunarþjónusta er fjársvelt í dag og það þyrfti að bæta verulega í. Ef sú ákvörðun verður tekin að setja aukið fjármagn í málaflokkinn sem mér finnst raunar frekar ótrúlegt að verði gert þá þarf að svara spurningunni: Hver á að hugsa um gamla fólkið?“ segir Pétur Magnússon, forstjóri Hrafnistuheimilanna. Hann verður einn frummælenda á málþingi sem haldið verður í dag um hverjir muni vinna á heilbrigðisstofnunum framtíðarinnar. Pétur segir að eins og staðan sé í dag vanti hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða til starfa á hjúkrunarheimili fyrir aldraða. Til að mæta því hafi ófaglært starfsfólk verið ráðið til starfa í auknum mæli. „Við erum ekki að mennta nógu marga heilbrigðisstarfsmenn í dag,“ segir hann og telur að neikvæð umræða um heilbrigðismál undanfarin ár hafi skaðað ímynd heilbrigðisstétta. Pétur telur að núverandi kerfi í öldrunarþjónustu verði ekki við lýði eftir 30 til 40 ár. „Við verðum að aðlaga okkur breyttum aðstæðum og ríki og sveitarfélög verða að taka af skarið um hvaða þjónustu þau ætla að veita öldruðum. Ég spái því að hið opinbera muni draga úr fjárframlögum og aldraðir verði sjálfir að greiða í mun meiri mæli fyrir þjónustuna,“ segir Pétur. Hann segir að það verði að fjölga búsetuúrræðum fyrir aldraða. Bjóða upp á mismunandi stórar íbúðir og mismikla þjónustu. „Það þarf að finna úrræði sem eru ekki eins dýr og þau sem við höfum í dag,“ segir hann.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira