Engum vísað frá í nýja gistiskýlinu Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 25. október 2014 12:00 Við nýja gistiskýlið. Tryggvi Magnússon umsjónarmaður segir menn geta gengið að því vísu að fá húsaskjól. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA „
Ég sé fyrir mér að það fari miklu betur um alla gesti okkar að öllu leyti. Þetta er að færast til nútímans hvað húsnæði varðar. Gamla húsnæðið í Farsóttarhúsinu í Þingholtsstræti fullnægði ekki kröfum um öryggi.“ Þetta segir Tryggvi Magnússon, umsjónarmaður nýja gistiskýlisins að Lindargötu 48 sem opnað verður á mánudaginn. Tryggvi fagnar bættri aðstöðu og því að nú verði engum vísað frá. Í Þingholtsstræti, þar sem var rými fyrir 20 manns, kom það fyrir að ekki var hægt að veita öllum gistingu yfir nóttina. „Við fengum til afnota lítið hús á Vatnsstíg fyrir fimm menn í desember í fyrra. Því verður nú lokað,“ segir Tryggvi. Hann getur þess að í nýja húsnæðinu að Lindargötu sé gert ráð fyrir 20 næturgestum. „Við getum hýst 25 og það er leyfi til að hýsa fleiri ef þörf krefur. Mönnum verður ekki vísað frá heldur verður málið bara leyst.“ Þegar flutt verður úr gistiskýlinu í Þingholtsstræti á mánudaginn yfirgefa gestirnir húsnæðið klukkan 10 um morguninn. Þeir geta svo komið í nýja húsnæðið að Lindargötu klukkan 17. „Það eru til staðir sem menn geta verið á að degi til, eins og í Dagsetri Hjálpræðishersins á Eyjaslóð og Kaffistofu Samhjálpar í Borgartúni,“ greinir Tryggvi frá en hann hefur tekið á móti næturgestum í sjö ár. Hann viðurkennir að starfið taki stundum á. „Jú, auðvitað. Það verður að segjast eins og er. Það er erfitt að sjá meðbræður sína líða þjáningar.“ Tryggvi á ekki von á því að menn safnist saman fyrir utan gistiskýlið eins og stundum gerðist í Þingholtsstræti. „Þegar allir komust ekki að í fyrra skapaðist óöryggi og þá komu menn snemma og biðu fyrir utan. Nú geta þeir gengið að því vísu að fá húsaskjól og það miklu betra. Húsið í Þingholtsstræti var byggt árið 1884 og var barn síns tíma. Það var timburhús en nú flytjum við í steinhús.“ Gerðar hafa verið miklar endurbætur að Lindargötu. „Það var nánast allt endurgert innanhúss,“ tekur Tryggvi fram.
Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira