Konungleg uppgötvun á Þingvöllum Garðar Örn Úlfarsson skrifar 25. október 2014 07:00 Gamlar kanthleðslur Konungsvegar komu í ljós er unnið var að lagfæringum vestan við Peningagjá á Þingvöllum. Mynd/Einar Á. E. Sæmundsen. „
Nú þurfum við að endurmeta alla hönnun og vinna úr þessari stöðu,“ segir Einar Á.E. Sæmundsen, fræðslufulltrúi þjóðgarðsins á Þingvöllum, um kanthleðslur úr gamla Konungsveginum sem komið hafa í ljós við Flosagjá og Nikulásargjá. Einar segir að í vikunni hafi hafist framkvæmdir vegna lagfæringar á veginum og aðkomusvæði vestan megin við brúna yfir Flosagjá, sem yfirleitt er nefnd Peningagjá. Malbik hafi verið flysjað ofan af veginum. „Við gerðum það mjög varlega vegna þess að hér getur maður alltaf átt von á fornleifum alls staðar. Mjög fljótlega komu hleðslur í ljós, fyrst norðan megin við veginn og síðan sunnan megin þar sem hleðslurnar eru skýrari. Það eru kantarnir á gamla Konungsveginum sem fór þarna yfir,“ segir Einar.Friðrik VIII ríður hér með liði sínu á Konungsveginum þar sem hann liggur að Flosagjá og þar yfir.Mynd/Þjóðminjasafn ÍslandsKonungur á Þingvöllum Konungsvegur var lagður í tilefni Íslandsheimsóknar Friðriks VIII Danakonungs árið 1907. Vegurinn liggur um Þingvelli að Geysi og Gullfossi og kostaði ríkið 14 prósent af ársútgjöldum. „Maður átti von á því að einhvern tíma í millitíðinni frá því vegurinn var byggður og þangað til í dag væri búið að ryðja minjum af honum burt en kantarnir af honum eru þarna mjög skýrir undir,“ segir Einar sem kveður fornleifafræðing nú vinna við að hreinsa hleðslurnar og meta. „Það verður reynt að fara eftir ráðleggingum frá Minjastofnun um það hvernig við getum hannað í kringum þetta. Það kemur kannski í ljós í næstu viku í hvað þetta stefnir. Hugsanlega verður þetta bara enn betra,“ segir fræðslufulltrúinn á Þingvöllum.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira