Íhuga að kæra Framsókn Sveinn Arnarsson skrifar 15. október 2014 08:45 Ríkisendurskoðun.
Ríkisendurskoðun íhugar að kæra Framsóknarflokkinn til lögreglu vegna brota á lögum um fjármál stjórnmálaflokka þegar flokkurinn tók við tveimur styrkjum yfir löglegri upphæð. Þetta staðfestir Lárus Ögmundsson, lögfræðingur Ríkisendurskoðunar. Fram kemur í ársreikningi Framsóknarflokksins að flokkurinn tók við tveimur styrkjum yfir hámarksupphæð, sem er 400 þúsund krónur. Einhamar Seafood styrkti flokkinn um 462.750 krónur og Skinney Þinganes styrkti flokkinn um 440 þúsund krónur. „Við erum að fara yfir málið í rólegheitum, það er stutt síðan þetta kom upp og við erum að velta því fyrir okkur hvort við eigum að fara með málið til lögreglu,“ segir Lárus. Ríkisendurskoðun benti Framsóknarflokknum á að þessir styrkir væru yfir löglegri upphæð. Framsóknarflokkurinn brást fljótt við ábendingum Ríkisendurskoðunar og hefur nú þegar greitt til baka rúmar 100 þúsund krónur samtals til þessara tveggja fyrirtækja. Í lögum um fjármál stjórnmálaflokka segir í 12. grein að hver sá sem veiti viðtöku styrkjum, sem honum sé óheimilt að taka við skuli sæta sektum og gera skuli lögaðilum sekt fyrir broti sem þessu. Einnig segir að refsa skuli fyrir brot hvort sem þau séu framin af ásetningi eða gáleysi. Lárus gat ekki svarað því hvenær Ríkisendurskoðun tæki afstöðu til þess hvort yrði kært eða ekki. „Við erum með þetta á okkar borðum, nú er svo komið að ríkisendurskoðandi er í viku fríi og við munum líklega skoða þetta betur í næstu viku,“ segir Lárus.
Mest lesið Nítján ára ferðamaður fannst látinn Erlent Fagnar „hugrökkum hetjum“ Bandaríkjahers en skrifar um þarmaflóruna á sautjánda júní Innlent Tilkynnt um hóp pilta í grunsamlegum erindagjörðum Innlent Íbúðin í rúst eftir Airbnb-gesti Innlent Boltaleikir bannaðir á skólalóðinni eftir klukkan tíu Innlent Skæður hakkarahópur herjar á framlínustarfsmenn Innlent Hegseth hafi logið því að gengið sé á vopnabirgðir Bandaríkjanna Erlent Hiti nær tuttugu stigum víða á morgun Veður Vill meira frá ríkinu, annars gætu nemar þurft að borga meira Innlent Leynileg neyðarfjárveiting Dana til flugvallagerðar á Grænlandi Erlent Fleiri fréttir Gul viðvörun: Brýna fyrir fólki á húsbílum að vara sig á vindinum Um sjötíu látnir í flóðunum og stúlknanna enn leitað Boltaleikir bannaðir á skólalóðinni eftir klukkan tíu Leggja til 80 milljónum árlega í nýja líkbrennslu Hinn stungni á batavegi en stungumennirnir ófundnir Mikill áhugi á ræktun rabarbara með tilkomu Rabarbarafélags Íslands Málþófið endurspegli ráðaleysi minnihlutans gagnvart samstíga stjórn Vill meira frá ríkinu, annars gætu nemar þurft að borga meira Stutt í land í þinginu og spenna fyrir landsleik Yfirgangur hins opinbera, þrátefli á þinginu og fráleit þjóðaratkvæðagreiðsla Ætla að knýja Flatey með sólarorku Fagnar „hugrökkum hetjum“ Bandaríkjahers en skrifar um þarmaflóruna á sautjánda júní Tilkynnt um hóp pilta í grunsamlegum erindagjörðum Skæður hakkarahópur herjar á framlínustarfsmenn „Býsna margt orðið grænmerkt“ Fjarlægðu sprengju við Keflavíkurflugvöll Leitar að eiganda trúlofunarhrings sem fannst í fjöru Á þriðja tug látnir í Texas og netþrjótar herja á flugfélög Nikkurnar þandar á Reyðarfirði alla helgina Íbúðin í rúst eftir Airbnb-gesti Konan er fundin Þriggja leitað vegna stunguárásar í miðbænum Björguðu göngukonu í sjálfheldu við Hrafntinnusker Mótorhjólakappi fluttur á sjúkrahús eftir að hafa fipast við akstur Tuttugu þingmenn mættu ekki á þingfund Vilja að nemendur borgi allt að 180 þúsund til að skrá sig Búið að boða til nýs fundar Kerecis bjargaði lífi skallaarnar í tæka tíð fyrir fjórða júlí Lögregla hleypti manni inn sem hafði læst sig úti Lítill munur á bitum bitmýs og lúsmýs Sjá meira