Innlent

Orðspor MS beðið hnekki síðustu daga

Sveinn Arnarsson skrifar
Framkvæmdastjóri Landssambands kúabænda hefur áhyggjur af stöðunni.
Framkvæmdastjóri Landssambands kúabænda hefur áhyggjur af stöðunni. Fréttablaðið/Pjetur
Baldur Helgi Benjamínsson, framkvæmdastjóri Landssambands kúabænda, telur orðspor Mjólkursamsölunnar hafa beðið hnekki. Það sé ekki til hagsbóta fyrir kúabændur í landinu. Baldur vill endurskoða búvörulögin.

Guðmundur Steingrímsson, formaður Bjartrar framtíðar, gagnrýndi Mjólkursamsöluna harðlega á þingi í gær. Telur hann Mjólkursamsöluna ekki haga sér nægilega vel á þeim markaði sem fyrirtækið starfar á.

„Þetta horfir þannig við mér að MS er í rauninni ekki afurðastöð. Að mínu viti eru tvær afurðastöðvar í landinu, Auðhumla og KS. Mjólkursamsalan er svo bara framleiðandi á afurðum úr mjólk. Þetta fyrirtæki, Mjólkursamsalan, er í algjörri einokunarstöðu og það er höfuðverkefni okkar stjórnmálamanna núna að koma í veg fyrir svona stöðu og fyrirbyggja að fyrirtæki með svona markaðsráðandi stöðu á úrvinnslustigi beiti alla ofríki á markaði. Um þessa framleiðslu, eins og aðra, eiga að gilda samkeppnislög,“ sagði Guðmundur.

Baldur Helgi Benjamínsson Formaður Landssambands kúabænda.
Baldur Helgi telur mjólkurframleiðsluna í heild hafa beðið hnekki síðustu daga og vikur. „Ég er hræddur um orðspor Mjólkursamsölunnar og það er ljóst að það hefur beðið hnekki síðustu daga. Bændur þurfa að ræða þá stöðu sem upp er komin,“ segir hann.

„Það er mjög mikilvægt að mjólkuriðnaðurinn endurheimti traust landsmanna. Landssamband kúabænda hefur af þessu miklar áhyggjur. Staðan er slæm.“

Baldur Helgi segir Landssambandið tilbúið til þess að setjast yfir búvörusamningana og gera nauðsynlega breytingar. „Það er okkar mat að mikilvægt sé að mjólkurframleiðslan í landinu sé í sátt við samfélagið og það skiptir máli fyrir bændur að tryggð sé fjölbreytni í úrvinnslu á mjólkurafurðum og að þeir sem vilja starfa við það hafi til þess rekstrargrundvöll,“ segir hann.

„Það þarf að yfirfara allt mjólkurframleiðslukerfið,“ heldur Baldur Helgi áfram. „Við erum tilbúnir til þess og bendi ég á að við settum inn í búvörusamningana árið 2012 að það þyrfti að fara ofan í saumana á skipulagi

mjólkurframleiðslunnar. Það er ekkert heilagt í þessum efnum. Það eru þessi grundvallaratriði sem verða að vera í lagi, fjölbreytni í úrvinnslu og að bændur fái gott verð fyrir afurðir sínar og hafi jafna aðstöðu gagnvart markaði, hvar sem þeir búa.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×