Síminn stoppaði ekki hjá Ellimálaráði Freyr Bjarnason skrifar 20. ágúst 2014 09:15 Þórey Dögg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Ellimálaráðs Reykjavíkurprófastsdæma. Fréttablaðið/Valli
Eftir að hafa ráðfært sig við biskup Íslands hefur Ríkisútvarpið ákveðið að hafa áfram á dagskrá að morgni morgunbæn og orð dagsins á Rás 1. Í þættinum verður flutt stutt hugvekja og bæn. Nýr þáttur um trúarleg málefni verður einnig á dagskrá á sunnudagskvöldum. Mikla athygli vakti í síðustu viku þegar ákveðið var að hætta lestri bæna á RÚV. Mótmælin komu úr ýmsum áttum og m.a. var stofnuð Facebook-mótmælasíða þar sem um 6.500 manns höfðu skráð sig í gær. Sömuleiðis stoppaði síminn ekki hjá Ellimálaráði Reykjavíkurprófastdæma eftir að tilkynnt var að lestri bænanna yrði hætt. Þar kvörtuðu eldri borgarar sáran yfir ákvörðuninni og óskuðu eftir því að ráðið gripi í taumana. Sú varð einmitt raunin árið 2007 þegar Ríkisútvarpið ætlaði að taka þáttinn Orð kvöldsins af dagskrá. Þá fundaði þáverandi framkvæmdastjóri ráðsins með Páli Magnússyni, þáverandi útvarpsstjóra, og á endanum var ákvörðunin dregin til baka. Þórey Dögg Jónsdóttir, núverandi framkvæmdastjóri, tók við starfinu fyrir ári en forveri hennar hafði sinnt því í fimmtán ár. „Það rigndi yfir hana beiðnum 2007 og hún sá sig knúna til að gera eitthvað í málinu. Hún safnaði undirskriftum og fór með hóp í RÚV,“ segir Þórey Dögg aðspurð og bætir við að síminn hafi ekki stoppað hjá þeim báðum undanfarna daga. Ellimálaráð ætlaði að funda í gær og til greina kom að óska eftir fundi með Magnúsi Geir Þórðarsyni útvarpsstjóra rétt eins og gert var fyrir sjö árum. Ljóst er að engin þörf verður á því í þetta sinn.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira