Fótbolti

Verða væntanlega með 40 þúsund öskrandi áhorfendur með sér

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ingvar Jónsson, í miðju, fagnar sigri á Motherwell ásamt félögum sínum í Stjörnuliðinu.
Ingvar Jónsson, í miðju, fagnar sigri á Motherwell ásamt félögum sínum í Stjörnuliðinu. Vísir/Daníel
Stjarnan mætir pólska liðinu Lech Poznan í seinni leik liðanna í þriðju umferð forkeppni Evrópudeildarinnar í kvöld. Leikið er ytra, á Inea Stadion, heimavelli Poznan sem tekur rúmlega 43.000 manns í sæti.

Stjörnumenn hafa forystu, 1-0, eftir fyrri leikinn á Samsung-vellinum, en það var Daninn Rolf Toft sem tryggði Garðbæingum sigurinn með marki á 48. mínútu. Poznan-menn sóttu stíft í leiknum og settu mikla pressu á heimamenn, en Stjörnuvörnin hélt sjó og fyrir aftan hana átti Ingvar Jónsson frábæran leik.

Fullir tilhlökkunar

Ingvar segist vera bjartsýnn fyrir seinni leikinn, en hann var að snæða hádegisverð þegar Fréttablaðið heyrði í honum í gær.

„Við erum allir fullir tilhlökkunar og mjög spenntir fyrir leiknum. Við vitum að þetta verður hrikalega erfitt, en það er allt hægt í fótbolta eins og sást í fyrri leiknum,“ sagði markvörðurinn sem hóf knattspyrnuferilinn hjá Njarðvík, en hefur verið í herbúðum Stjörnunnar frá haustinu 2010.

„Þeir verða væntanlega með 40.000 öskrandi áhorfendur með sér, þannig að þetta verður rosalegt,“ bætti Ingvar við, en stuðningsmenn Poznan eru meðal þeirra allra hörðustu í Póllandi og eru frægir fyrir sérstakt fagn, þar sem þeir snúa baki í völlinn, taka hver utan um annan og hoppa í takt.

Vonandi stöndumst við pressuna

Ingvar segir mikilvægt fyrir Stjörnumenn að fá ekki á sig mark snemma leiks í kvöld. „Það verður gríðarlega mikilvægt. Þeir munu setja mikla pressu á okkur, eins og þeir gerðu í fyrri leiknum. Við stóðumst hana þá og vonandi stöndumst við hana aftur. Þetta gekk ágætlega í fyrri leiknum og þeir kvörtuðu mikið yfir aðstæðum,“ sagði Ingvar og vísaði þar til umkvartana þjálfara Poznan, Mariusz Rumak, eftir fyrri leikinn í Garðabæ.

Rumak var ekki ánægður með gervigrasið á Samsung-vellinum og talaði um að boltinn hefði ekki flotið vel á því. „Þeir eru eflaust betri að spila á nýslegnu og blautu grasi,“ bætti Ingvar við, en hann talaði einnig um að Stjörnumenn þyrftu að hafa góðar gætur á flinkum og fljótum leikmönnum pólska liðsins.

Poznan hefur ekki byrjað vel í pólsku úrvalsdeildinni, en á sunnudaginn tapaði liðið fyrir Wisla Kraków á heimavelli með þremur mörkum gegn tveimur. Eftir þrjár umferðir situr Poznan í 9. sæti með fjögur stig, en Ingvar segir að fyrir vikið muni pólska liðið eflaust mæta enn ákveðnara til leiks: „Þeir eru langt frá því að vera ósigrandi og hafa ekki farið of vel af stað í deildinni, en þeir mæta eflaust enn grimmari til leiks. Það var nóg að gera í fyrri leiknum og það verður örugglega enn meira að gera í kvöld.“

Erum með eitraðar skyndisóknir

Þrátt fyrir að Poznan-liðið sé gríðarlega sterkt og útivöllurinn sterkur hafa Stjörnumenn fulla trú á verkefninu að sögn Ingvars: „Við höfum allir trú á þessu. Maður vissi ekki alveg við hverju átti að búast fyrir fyrri leikinn, en eftir sigurinn hafa allir í félaginu trú á að við getum farið áfram,“ sagði markvörðurinn öflugi og bætti við:

„Ef við náum að halda markinu hreinu í einhvern tíma gæti gripið um sig örvænting í þeirra liði. Við erum með eitraðar skyndisóknir og ef við náum að skora komumst við í góða stöðu. Og þótt þeir skori 1-2 mörk, þá erum við alltaf inni í leiknum, því eitt útivallarmark dugar okkur.


Tengdar fréttir

Náum vonandi góðum úrslitum í fyrri leiknum

Daníel Laxdal er leikmaður 13. umferðar hjá Fréttablaðinu, en hann átti stórleik í 2-0 sigri Stjörnunnar á ÍBV. Stjarnan á í baráttu við FH á toppnum, auk þess sem liðið stendur í ströngu í undankeppni Evrópudeildarinnar þar sem liðið mætir Lech Poznan í þriðju umferð..

Stjörnumenn að endurskrifa sögubækurnar

Ekkert íslenskt félag hefur byrjað eins vel í Evrópukeppni og lið Stjörnunnar. Stjarnan fylgdi eftir dramatískum endurkomusigri á skoska liðinu Motherwell með 1–0 sigri á pólska liðinu Lech Poznan í fyrrakvöld.

Þetta er algjört ævintýri

Árangur Stjörnunnar er einstakur segir einn helsti knattspyrnusérfræðingur landsins og er sigurinn einn sá merkilegasti í íslenskri knattspyrnusögu.

Von er á einni bestu stuðningsmannsveit Evrópu

Með sigri gegn Motherwell í gær komst Stjarnan í 3. umferð undankeppni Evrópudeildarinnar en næsti mótherji er Lech Poznan. Stuðningsmenn liðsins eru gríðarlega ástríðufullir og verður gaman að sjá hversu margir mæta til landsins.

Trúin getur flutt fjöll

Stjarnan heldur Evrópuævintýri sínu áfram í kvöld þegar það mætir pólska liðinu Lech Poznan. Atli Jóhannsson segir Garðbæinga hafa engu að tapa, en sér þó veikleika á Poznan-liðinu sem má nýta. Stuðningsmenn beggja liða þykja frábærir og verður spennandi að sjá stemminguna á vellinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×