Krefjast kosninga um nýjan prest í Seljakirkju Jón Hákon Halldórsson skrifar 4. júlí 2014 07:00 Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, féllst ekki á niðurstöðu valnefndar.
Kjörstjórn Þjóðkirkjunnar mun funda í dag um kröfu íbúa í Seljahverfi um að fram fari prestkosningar. Staðan hefur tvisvar verið auglýst. Í fyrra skiptið rann frestur til að sækja um út þann 15. apríl síðastliðinn. Valnefnd komst að þeirri niðurstöðu að skipa ætti Ólaf Jóhann Borgþórsson, prest í Seljakirkju, í embættið. „Eftir að fyrra ferlinu lauk var niðurstaða valnefndar á þá leið að biskup ákvað að auglýsa aftur. Það er þrennt í stöðunni sem biskup getur gert. Að staðfesta niðurstöðu valnefndar, framlengja umsóknarfrest eða auglýsa embættið að nýju,“ segir Þorvaldur Víðisson biskupsritari. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var ástæða ákvörðunar biskups sú að í hópi umsækjenda var kona sem gegnt hefur prestsembætti á Akureyri um árabil. Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, hafi því óttast að ráðning Ólafs Jóhanns í stöðu sóknarprests yrði kærð á grundvelli jafnréttislaga. Sóknarbörn í Seljakirkju vildu ekki una við þessa niðurstöðu. Því var fundað um málið og ákveðið að krafist yrði almennra prestkosninga. Umsóknarfrestur eftir að auglýst var í seinna skiptið rann út fyrsta júlí. Ráðgert er að birta nöfn umsækjenda í dag. „Stjórnin mun fara yfir stöðu með tilliti til starfsreglna sem varða val á prestum,“ segir Hjördís Stefánsdóttir, formaður kjörstjórnar.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Innlent Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Erlent Fleiri fréttir Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun Sjá meira