Vinnusálfræðingar kanna samskiptavanda starfsmanna og forstöðumanns á Hlíð Sveinn Arnarsson skrifar 23. júní 2014 07:45 Allt logar í illindum á einni deild og starfsfólk er hrætt um að ástandið muni bitna á vistmönnum. mynd/heida.is
Mikil óánægja ríkir á meðal starfsmanna öldrunarheimilisins Hlíðar á Akureyri. Er svo komið að á einni deild hafa starfsmenn horfið á braut vegna samskiptavandamála við forstöðumann deildarinnar og vinnusálfræðingar hjá sálfræðiþjónustunni Líf og Sál í Reykjavík hafa verið fengnir til að fara ofan í saumana á vinnuskilyrðum á deildinni. Í byrjun febrúar héldu starfsmenn umræddrar deildar fund þar sem þeir fóru yfir ástandið. Fundurinn var að sögn erfiður og kom fram mikil óánægja með starfandi forstöðumann. Umræðuefni fundarins var viðvarandi vandamál á deildinni vegna starfsanda og vinnuskilyrða á deildinni. Var ástandið á þeim tíma orðið það slæmt að ekki varð unað við það lengur. Starfsfólki deildarinnar líður illa í kringum forstöðumann, þeir eru teknir á teppið fyrir litlar sem engar sakir, fjölda starfsmanna hefur verið ýtt burt af deildinni og flutt sig annað vegna samskiptavanda við forstöðumann. Starfsfólk segir sér líða illa yfir því að geta ekki kvartað til yfirmanns síns því það óttast það að missa vinnuna ef það fellur í ónáð. Átta starfsmenn hafa á síðustu misserum hætt störfum á deildinni aðeins vegna umrædds forstöðumanns. Vinnusálfræðingateymi frá sálfræðiþjónustunni Líf og Sál vinnur nú að því að skoða vinnuskilyrðin á deildinni. Hafa sálfræðingar á þeirra vegum tekið viðtal við starfsmenn deildarinnar til að reyna að greina stöðuna. Starfsmenn sem Fréttablaðið hefur talað við telja að þessi umrædda deild búi við það ástand að þar logi allt stafnanna á milli og engin leið sé að vera glaður og sáttur í vinnunni. Nú er svo komið að vegna starfsmannaveltu á staðnum eru starfsmenn uggandi yfir því að þetta geti haft áhrif á klínískt og gott starf sem reynt er að vinna á deildinni. Óttast þau að ástandið geti farið að hafa áhrif á íbúa deildarinnar. Halla Margrét Tryggvadóttir, starfsmannastjóri Akureyrarbæjar, vildi ekki tjá sig við blaðamann þegar eftir því var leitað. Halldór Sigurður Guðmundsson, framkvæmdastjóri Öldrunarheimilisins, vildi heldur ekki ræða málið á þessu stigi málsins en sagði að umræddur forstöðumaður hefði fullt traust til starfans.
Tengdar fréttir Framkvæmdastjóri fjarlægði undirskriftalista starfsmanna Starfsfólk óánægt með stjórn Hlíðar. 20. júní 2014 00:01 Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Fleiri fréttir Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga Sjá meira
Framkvæmdastjóri fjarlægði undirskriftalista starfsmanna Starfsfólk óánægt með stjórn Hlíðar. 20. júní 2014 00:01