30 milljónir töpuðust á einum degi Freyr Bjarnason skrifar 22. maí 2014 07:00 Framkvæmdastjóri Kötlu DMI og Viator segist hafa tapað rúmlega 30 milljóna króna veltu á einum degi. Fréttablaðið/Valli „
Þetta hefur mikil áhrif á okkur. Bara á föstudaginn fyrir tveimur vikum þegar verkfallið var í tólf tíma þá töpuðum við rúmlega 30 milljóna króna veltu, bara á einum degi þegar tveir hópar hættu við,“ segir Pétur Óskarsson, framkvæmdastjóri fyrirtækjanna Kötlu DMI og Viator. Þau þjónusta þúsundir erlendra ferðamanna á Íslandi á ári hverju, flesta frá Mið-Evrópu. Icelandair hefur þurft að aflýsa að meðaltali fimm flugferðum á dag vegna aðgerða flugmanna sem vilja ekki vinna yfirvinnu. Ferðaþjónustuaðilar eru uggandi yfir ástandinu og í ályktun sem Samtök ferðaþjónustunnar sendu frá sér í gær krefjast þau þess að starfsmann Icelandair láti af aðgerðum sínum. „Hægt er að reikna tapaðar tekjur en ímynd og orðspor Íslands sem áfangastaðar fyrir ferðamenn er ómetanlegt,“ segir í ályktuninni en um níutíu flugferðum hefur nú þegar verið aflýst sem hefur haft áhrif á hátt í tólf þúsund farþega. Pétur segist upplifa mikið vantraust af hálfu gesta sinna til íslenskrar ferðaþjónustu vegna ástandsins. „Að vera með hnút í maganum út af heimferðinni truflar rosalega upplifun gestanna af því að vera á Íslandi í fríi. Þjóðverjar leggja til dæmis gríðarlega mikið upp úr því að áætlanir standist. Þetta er að skaða nafn og orðstír Icelandair alveg svakalega. Vörumerkið Ísland er líka að skaðast og það getur tekið langan tíma að laga það,“ segir hann og bætir við að álagið sé venjulega mikið á þessum tíma við að skipuleggja sumarið 2015. „Það er rosalega erfitt að vera með allt í uppnámi og „kaos“. Við erum vön að takast á við náttúruhamfarir, Múlakvísl, Eyjafjallajökul og svo framvegis, en þetta er alveg glatað að vera með svona manngerðar „katastrófur“ sem setja allt á hliðina hjá okkur.“ Gylfi Freyr Guðmundsson, aðstoðarhótelstjóri Grand Hótels Reykjavík, segir áhrifin vegna ástandsins virka í báðar áttir. „Við missum viðskiptavini sem geta ekki komið til okkar en á móti eru gestir sem festast á landinu og þurfa aukagistingu. Það vegur aðeins á móti en við verðum samt fyrir töluverðu tapi,“ segir hann. Fyrsta verkfall flugmanna hafði þau áhrif að tvö til þrjú hundruð gistinætur töpuðust hjá hótelinu. „Þó svo að við fáum 40 til 50 nætur á móti þá er þetta gríðarlegt tap.“
Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Innlent Fleiri fréttir Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Sjá meira