Vinnustöðvun takist ekki að semja í dag Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 14. maí 2014 00:01 Grunnskólakennarar mættu á bæjarstjórnarfund í Kópavogi í gær til að leggja áherslu á kröfur sínar.fréttablaðið/gva
Kennarar leggja niður vinnu í grunnskólum á morgun takist ekki samningar milli Félags grunnskólakennara og Samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga í dag. Fundað var hjá sáttasemjara í gær og á mánudag. Ekki hafði þá verið fundað síðan á miðvikudag í síðustu viku. „Okkur hefur þótt skorta áhuga og vilja hjá sveitarstjórnarmönnum en maður pínir engan að samningaborði. Eftir að Bandalag háskólamanna og Félag framhaldsskólakennara sömdu vorum við í ágætis vinnutörn með þetta en svo kom hlé. Við hefðum viljað meiri kraft í þetta fyrr,“ segir Ólafur Loftsson, formaður Félags grunnskólakennara. Viðræður síðustu vikur hafa snúist um nýtt vinnumat á starfi grunnskólakennara. „Við eru komnir langt með það og svo koma launaliðirnir. Þar eru markmiðin skýr. Við viljum fá sömu laun og aðrar háskólamenntaðar stéttir sem hafa sambærilega menntun og bera sambærilega ábyrgð.“ólafur LoftssonÓlafur tekur fram að reynt verði af fremsta megni að ljúka samningagerð áður en til vinnustöðvunar kemur. „Ég hef ekki heyrt í neinum sem hefur ekki skilning á því að menn þurfi að gera þetta. Foreldrar hafa auðvitað áhyggjur og hvetja menn til að semja en við verðum ekki vör við annað en að þeir hafi á þessu skilning.“ Skipulagðir hafa verið útifundir víða um land komi til vinnustöðvunar á morgun og félagsmenn í Félagi grunnskólakennara munu krefja frambjóðendur til sveitarstjórna svara um stefnu þeirra í kjaramálum kennara. Vinnustöðvanir hafa einnig verið boðaðar á miðvikudag í næstu viku og á þriðjudag í þar næstu viku.
Tengdar fréttir Líkur á verkfalli grunnskólakennara á fimmtudag Mikið ber á milli samningsaðila og kröfur kennara samræmast ekki tilboði ríkisins. 13. maí 2014 13:39 Mest lesið „Erum við að fara að deyja?“ Innlent Mogginn afþakkar framlag Dags B. Innlent Hallast að því að þetta sé einbeittur brotavilji Innlent „Áreiðanlegar upplýsingar“ um að Sindri sé í varðhaldi Innlent Dró sér fé sem gjaldkeri framboðsins Innlent Með um 2,8 milljónir í laun sem bæjarstjóri Innlent Óvenjuleg fley undan ströndum Reykjavíkur Innlent Endurbætur kostuðu 415 milljónir: Veggfóður fyrir nítján milljónir og ljós fyrir ellefu Innlent Íslenskur ofurjeppi á leið í framleiðslu Innlent Repúblikanar unnu kjördæmastríðið Erlent Fleiri fréttir Fólskuleg árás og óvinsæl sundtíska Furðulegum fiskum, hetjum hafsins og brunabangsa bregður fyrir um helgina Guðlaug skipuð skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja „Áreiðanlegar upplýsingar“ um að Sindri sé í varðhaldi Vill gera stjórnvöldum heimilt að synja beiðni um nafnbreytingu Endurbætur kostuðu 415 milljónir: Veggfóður fyrir nítján milljónir og ljós fyrir ellefu FÍA hvetur flugmenn til að hlaupa undir bagga og styðja við Icelandair Mogginn afþakkar framlag Dags B. Sendi frá sér yfirlýsingu vegna umfjöllunar Ætlar að synda niður Lagarfljót fyrstur manna Skiptiskjól á þremur stöðum í Reykjavík Hallast að því að þetta sé einbeittur brotavilji Rafbyssum aldrei beitt oftar Munu auglýsa eftir nýjum bæjarstjóra Réttmæt reiði vegna ofurkjara kjörinna fulltrúa og embættismanna „Auga fyrir auga, tönn fyrir tönn“ Tók fjögur ár að slá föstu að samræði við barn væri nauðgun Kærður fyrir að löðrunga hundinn sinn Óttast fordæmið sem ákvörðun ráðherra setur um Baldur Botnlaus gróðafýsn, viðsnúningur í nauðgunarmáli og óánægja vegna Baldurs „Erum við að fara að deyja?“ Saka stjórnvöld um að tefja endurreisn Grindavíkur Óvenjuleg fley undan ströndum Reykjavíkur Með um 2,8 milljónir í laun sem bæjarstjóri Kjarnorkuknúinn kafbátur í þjónustuheimsókn Ákvörðun innviðaráðherra beri vott um „ákveðið skeytingarleysi“ Íbúi á höfuðborgarsvæðinu kærður fyrir að „misþyrma“ gæludýrinu sínu Nýr bæjarstjóri fær rúmar 2,5 milljónir á mánuði Íslenskur ofurjeppi á leið í framleiðslu Dró sér fé sem gjaldkeri framboðsins Sjá meira
Líkur á verkfalli grunnskólakennara á fimmtudag Mikið ber á milli samningsaðila og kröfur kennara samræmast ekki tilboði ríkisins. 13. maí 2014 13:39