Verður íbúðarhús þótt nágrannar mótmæli Garðar Örn Úlfarsson skrifar 16. október 2014 09:15 Þannig sjá Yrki arkitektar fyrir sér Strandgötu 31-33 eftir breytingar. Bætt verður inndreginni hæð ofan á húsið og svalir byggðar utan á húsið. Mynd/Yrki arktitektar „
Það þarf að glæða miðbæinn lífi. Þetta er eitt af því sem gæti mögulega gert það,“ segir Ásdís Helga Ágústsdóttir, hjá Yrki arkitektum sem standa að því að breyta efri hæðum verslunar- og skrifstofuhússins á Strandgötu 31-33 í Hafnarfirði í fjölbýlishús. Skipulags- og byggingaráð Hafnarfjarðar hefur samþykkt að breyta deiliskipulagi svo áform Yrkis geti gengið eftir. Yrki gerði Hafnarfjarðarbæ og Landsbankanum kauptilboð í húsið með fyrirvara um samþykki fyrir íbúðum sem verða 20 til 25 talsins. Byggð verður inndregin fjórða hæð ofan á húsið og þar verða íbúðir sem og á annarri og þriðju hæð. Áfram verða verslanir á jarðhæðinni. Nágrannarnir eru ekki allir hrifnir og bárust fjölmargar athugasemdir, þar af níu skriflegar. „Ef tillaga Yrkis arkitekta hefði verið uppi á borðinu árið 2004 hefði ég ekki einu sinni leitt hugann að því að kaupa lóðina að Gunnarssundi,“ segir í athugasemd konu sem býr í Gunnarssundi aftan við Strandgötu 31-33. Hún telji íbúðablokk í bakgarðinum rýra verðgildi húss hennar og lífsgæði þeirra sem þar búa. „Ég tel að í þessu tilviki sé Hafnarfjarðarbær að fórna hagsmunum íbúa Hafnarfjarðar fyrir hagsmuni fjárfesta sem vilja græða sem mest,“ segir konan og krefst þess að bærinn kaupi hús hennar verði breytingin samþykkt. „Að mínu mati er búið að eyðileggja svolítið miðbæinn í Hafnarfirði með því að setja íbúðabyggð um næstum alla Strandgötuna,“ segir íbúi við Austurgötu. „Ekkert er að finna í gildandi deiliskipulagi né aðalskipulagi sem takmarkar eða kemur í veg fyrir að efri hæðum þessara húsa sé breytt í íbúðarhús með verslun og þjónustu í götuhæð,“ svarar skipulagssvið bæjarins í umsögn. Í aðalskipulagi segi að þar sem aðstæður leyfi megi gera ráð fyrir íbúðarhúsnæði, sérstaklega á efri hæðum bygginga. Þá segir skipulagssviðið málið ekki vera fordæmisgefandi því aðeins fjögur hús við norðanverða Strandgötu gætu tekið slíkum breytingum. „Það væri alvarleg hugsanavilla ef sótt væri um sambærilega stækkun við járnvarin timburhús, byggingar með bröttum mænisþökum eða hús sem bera til dæmis sterk einkenni hins íslenska afbrigðis af notagildisstefnunni.“ Skipulagssvið segir að umhverfisgæði verði ekki skert. „Með breytingu í íbúðir, þá aukast að vísu líkur á umgangi fólks um lóð og næsta nágrenni eftir að vinnudegi lýkur, en nágrannavarsla og samkennd ætti frekar að aukast. Innsýn í íbúðir og skerðing á einkahögum fólks við slíkar aðstæður eykst ekki frá því sem nú er.“
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira