Afstýrðu verkfalli á allra síðustu stundu Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 11. nóvember 2014 07:00 Jófríður segir viðræðurnar hafa verið erfiðar og lítið hafi verið sofið áður en samningur var undirritaður. Mynd/Aðsend „
Ég er afskaplega ánægður með að við skyldum ná að afstýra verkfalli með öllum þeim óþægindum sem því hefði fylgt,“ sagði Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs. Kjarasamningar bæjarins við Starfsmannafélag Kópavogs (SFK) voru undirritaðir klukkan hálf sjö í gærmorgun, hálftíma áður en verkfall átti að hefjast. Ármann telur niðurstöðuna farsæla fyrir alla og segist þakklátur aðilum beggja vegna borðs fyrir að ná að klára málið. Jófríður Hanna Sigfúsdóttir, formaður SFK, segir samninginn einkennast af miklum málamiðlunum en félagið setti fram nokkur skilyrði sem það taldi sig ekki geta vikið frá. Þar á meðal var tryggt að svokölluð háskólabókun félli ekki úr samningum. „Hefði háskólabókunin fallið algjörlega út, eins og bæjaryfirvöld vildu, þá væri í raun verið að hindra viðkomandi starfsmenn í að vera í Starfsmannafélagi Kópavogs, þar sem þeir hafa verið í ár og áratugi,“ sagði Jófríður. Hún telur að með heildarendurskoðun á starfsmati verði hún óþörf. „Við bindum vonir við að í næsta kjarasamningi verði launataflan leiðrétt enn meira. Þá mun hún ná að halda utan um háskólamenntaða aðila, þá þurfum við enga háskólabókun.“ Ármann bæjarstjóri segir að fljótlega verði farið í þessa heildarendurskoðun. „Það er stórt verkefni og yfirgripsmikið.“
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Segja engan fund á dagskrá Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent Fleiri fréttir Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Sjá meira