Geðlæknar við störf á tveimur stöðum Sveinn Arnarsson skrifar 31. október 2014 10:00 nordicphotos/Getty
Geðlæknar eru aðeins starfandi í Reykjavík, á Seltjarnarnesi og á Akureyri. Þetta kemur fram í úttekt Byggðastofnunar á staðsetningu þjónustu á landinu öllu. Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra segir umfang geðlækninga á landinu vera mest þar sem flest fólk er, það er á höfuðborgarsvæðinu og á Eyjafjarðarsvæðinu, en síðan minnki þjónustan eftir því sem svæðin séu fámennari. „Það er hins vegar hluti af því sem við kemur sameiningu heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni undir sterkari stjórn að geta nýtt sérfræðiþekkingu sem þessa á fleiri stöðum. Með því er hægt að veita betri þjónustu á fámennum svæðum landsins og nýta sérfræðiþekkingu innan heilbrigðisstofnana með hagkvæmari og betri hætti.“ Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, formaður velferðarnefndar Alþingis, telur þjónustu geðlækna á landinu verða að færast nær fólkinu og verða hluti af nærþjónustu í heimabyggð. „Í þeirri geðheilbrigðisstefnu sem nú er í mótun er ekki síst verið að horfa til heilsugæslustöðvanna sem lykilstöðva. Þá skiptir miklu máli að heilsugæslan sé í stakk búin til að taka við því og að geðlæknir sé tiltækur. Við þurfum þekkingu á geðheilbrigðismálum inn í heilsugæsluna.“ Samkvæmt Læknafélagi Íslands eru 78 geðlæknar starfandi á landinu. Langflestir þeirra eru starfandi á höfuðborgarsvæðinu. Kristján segir marga geðlækna einnig vinna vítt og breitt um landið þótt þeir séu ekki staðsettir þar allt árið um kring. „Þetta er gert þannig að því er stýrt að einhverju leyti í gegnum heilbrigðisstofnanir á landinu. Á sumum stöðum er samstarf stóru sjúkrahúsanna þannig að það teygir sig yfir á stærra svæði. Einnig eru geðlæknar að starfrækja sína þjónustu á eigin vegum í gegnum Sjúkratryggingar annars staðar á landinu. Það er ljóst að þjónusta geðlækna er langmest á höfuðborgarsvæðinu enda eru flestir íbúar á því svæði landsins.“ Sigríður Ingibjörg telur mikilvægt að allir geti nýtt sér þjónustu geðlækna. „Við verðum að veita heilsugæslunni leiðir til að veita slíka þjónustu. Einstaklingar verða að finna sér leiðir til að leita læknis, þeir veigra sér við að kaupa sér flugfar til Reykjavíkur alla jafna vegna geðrænna vandamála.“
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira