Forbes fjallar um Bæjarins beztu: Telja eftirnafn Maríu vera Pylsuvagninn Stefán Árni Pálsson skrifar 31. október 2014 14:39 vísir/skjáskot af síðu Forbes
Bandaríska viðskiptatímaritið Forbes segir Bæjarins Beztu vera frægasta pylsuvagn í heiminum. Í frétt Forbes kemur fram að pylsuvagninn hafi í raun orðið heimsfrægur þegar Bill Clinton, fyrrum forseti Bandaríkjanna, fékk sér pylsu þar um árið. Staðurinn hefur verið staðsettur við höfnina síðan árið 1937. Guðrún Kristmannsdóttir, eigandi staðarins, segir í viðtali við miðilinn að líklega hafi hver einasti Íslendingur bragðað á pylsunum sem þau bjóða upp á. Ítarlega er rætt við Maríu Einarsdóttur sem hefur starfað sem pylsusali í vagninum í mörg ár. Hún tók meðal annars á móti Bill Clinton á sínum tíma. Blaðamaður Forbes hefur aftur á móti eitthvað misskilið Maríu en hún er endurtekið titluð María Pylsuvagninn í greininni og í myndatexta. Greinilegt er að blaðamaður telur Pylsuvagninn vera eftirnafn pylsusalans þjóðþekkta. María afgreiddi Clinton þann 31. ágúst 2004 þegar hann var á landinu á UNICEF ráðstefnu. „Ég þekkti hann um leið og hann labbaði framhjá,“ segir María í samtali við Forbes. „Ég kallaði til hans að hér væri bestu pylsur í heiminum. Hann gekk að mér skælbrosandi, og ég held að lífverði hans hafi ekki þótt það sniðugt, og spurði mig hvað ég hefði verið að segja. Þá endurtók ég að hér væru bestu pylsur í heiminum, hann þyrfti að bragða á þeim.“ María segir að Clinton hafi bara viljað sinnep á pylsuna sína.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira