Bregðast þarf við strax svo ekki fari illa í Landmannalaugum Hrund Þórsdóttir skrifar 24. júní 2014 20:00
Árið 2011 hafði umferð um Fjallabaksleið nyrðri við Frostastaðavatn nær fimmfaldast á um 15 árum og sumarið 2000 heimsóttu um 60 þúsund manns Landmannalaugar en 2011 voru gestir þar rúmlega 120 þúsund talsins. Þetta þýðir að fjöldi ferðamanna þar tvöfaldaðist á um áratug og enn fjölgar. Fegurðin í Landmannalaugum lætur sennilega engan ósnortinn enda er þetta vinsælasti áfangastaður ferðamanna á hálendinu. Ferðamönnum hefur hins vegar fjölgað gríðarlega og landið lætur á sjá; raunar svo mikið að Landamannalaugar eru á rauðum lista Umhverfisstofnunar yfir svæði sem eru undir svo miklu álagi að bregðast þarf við, strax. „Þetta þýðir að á svæðið hefur verið gengið og það þarf að bregðast við til að ekki fari verulega illa,“ segir Ingibjörg Eiríksdóttir, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun og svæðalandvörður á Suðurlandi. „Hér mæðir ekki síður á félagslega en náttúrufarslega og það er verið að skoða leiðir til stýringar. Vinna við varnaráætlun fyrir friðlandið er hafin og Ingibjörg segir beðið eftir svæðisskipulagi svo hægt sé að vinna að varanlegum lausnum. „Í bili eru sjálfboðaliðar Umhverfisstofnunar að störfum við að hlúa að svæðinu; lagfæra merkingar og göngustíga og ýmsa innviði til stýringar ferðamanna,“ segir Ingibjörg. Óháðir aðilar gera nú úttekt á þeim hluta Laugavegarins sem liggur innan friðlands og nýstofnað starf heilsárslandvarðar, sem Ingibjörg sinnir, hefur bætt utanumhald um svæðið. Hún segir kjarna málsins vera að fólk sæki í hálendið vegna kyrrðarinnar en svo sé það markaðssett á þeim forsendum, sem fjölgi ferðamönnum, sem skerði svo eðlilega kyrrðina. „Þannig að þetta er línudans sem er vandi að stíga, en mikil áskorun og spennandi,“ segir hún að lokum. Stöð 2 og Vísir munu á næstunni fjalla meira um Landmannalaugar og nágrenni; meðal annars hugsanlega færslu þjónustunnar sem nú er í Landmannalaugum, út fyrir svæðið.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Fleiri fréttir Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Sjá meira