Akurnesingar beðnir um að fara sparlega með heita vatnið Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 4. desember 2014 09:32 Starfsfólk Orkuveitunnar biður Akurnesinga afsökunar á heitavatnsskorti. Vísir/GVA
Ítrekaðar bilanir á aðveituæð hitaveitunnar til Akraness, Deildartunguæðinni, ollu því að bærinn hefur verið heitavatnslaus frá því síðdegis í gær. Orkuveitan biður íbúa um að fara sparlega með heita vatnið meðan jafnvægi er komið á í rekstri hitaveitunnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Orkuveitunni. Í gær var unnið að tengingu nýs heitavatnsgeymis á Akranesi, en hlutverk hans er að draga úr líkum á því að heitavatnsskortur verði í bænum. Við þá vinnu lækkaði mjög í eldri geyminum þar sem loka þurfti fyrir aðveituæðina. Að vinnunni lokinni, þegar vatni var hleypt á að nýju, bilaði lögnin. Vegna lágrar vatnsstöðu í geyminum varð fljótlega vatnslaust á Akranesi. Eftir að viðgerð lauk í gærkvöldi var hleypt á að nýju. Þá vildi ekki betur til að að aftur bilaði. Það var um tvöleytið í nótt. Starfsfólk Orkuveitunnar lauk viðgerð á þeirri bilun síðla nætur og verið er að ná upp þrýstingi í aðveitunni og dreifikerfi bæjarins. Þetta þýðir þó að lágur þrýstingur verður í hitaveitunni á Akranesi í allan dag og biður Orkuveitan íbúa að fara sparlega með heita vatnið meðan jafnvægi er komið á. Það getur falist í því að hafa glugga lokaða og útidyr ekki opnar meira en þörf krefur til að ekki kólni í húsum meira en orðið er. Starfsfólk Orkuveitunnar biðst velvirðingar á óþægindum vegna þessa.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Fleiri fréttir Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Sjá meira