Bjarni segir Ólöfu njóta óskoraðs trausts Heimir Már Pétursson skrifar 4. desember 2014 18:46
Formaður Sjálfstæðisflokksins segir að það hafi verið vandasöm ákvörðun að velja Ólöfu Nordal í embætti innanríkisráðherra. Ólöf njóti hins vegar óskoraðs trausts sjálfstæðismanna. Einar K. Guðfinnsson forseti Alþingis hafnaði boði um að taka við innanríkisráðuneytinu. Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins kom saman til fundar í Valhöll rétt fyrir klukkan tíu í morgun þar sem margir hafa sjálfsagt setið með ráðherra í maganum. En skömmu eftir að fundurinn hófst kom Bjarni Benedikstsson út af fundinum og greindi frá því að hann hefði valið Ólöfu Norðdal til að taka við innanríkisráðuneytinu og dómsmálunum af Hönnu Birnu Kristjánsdóttur og Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni. „Þetta er vandasöm ákvörðun sem ég stóð frami fyrir. Fyrst og fremst vildi ég fá einstakling sem nyti óskoraðs trausts okkar sjálfstæðismanna. Ég lít á hana sem eina af okkur enda var hún á þingi með okkur allt fram á síðasta ár. Hún hefur reynslu úr ráðuneytinu. Hún er lögfræðimenntuð,” segir Bjarni. Val hans á Ólöfu þýði þó ekki að hann hafi ekki treyst ýmsum þingmönnum flokksins til að verða ráðherra. Hann hafi til að mynda rætt þau mál við Einar K. Guðfinnsson forseta Alþingis sama dag og það lá fyrir að Hanna Birna ætlaði að segja af sér. „Við höfum í millitíðinni átt nokkur samtöl síðast í gær. Niðurstaðan er sú að hann óskar ekki eftir því að gerðar séu breytingar á hans stöðu. Ég var þá ekkert að þrýsta frekar á um það og geri þess vegan þessa tillögu,” segir Bjarni. „Þetta var auðvitað mjög freistandi fyrir mig að takast á við þetta nýja verkefni en það var niðurstaða mín að ég vildi frekar gegna þessu starfi sem ég hef verið að gegna núna í rúmt eitt ár. Ég tel að þetta sé mesta virðingarstaða sem einum þingmanni getur hlotnast, að vera æðsti yfirmaður sjálfrar löggjafarsamkomu þjóðarinnar,” sagði Einar eftir þingflokksfundinn. En hann var ráðherra sjávarútvegs og lándbúnaðar á árunum 2005 til 2009. „Ég var ekki búinn að fá nóg sem sést á því að ég vildi gjarnan verða ráðherra í upphafi kjörtímabilsins. Þá varð niðurstaðan önnur og ég er mjög þakklátur fyrir það og ég er mjög ánægður með að það skyldi verða niðurstaðan á þeim tíma, núna þegar ég horfi til baka,“ segir Einar K. Guðfinnsson.
Mest lesið Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Enn öðru flugi aflýst Innlent Fleiri fréttir „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Sjá meira