Innihald rotþróa til uppgræðslu Garðar Örn Úlfarsson skrifar 3. desember 2014 07:00 Næg verkefni eru í uppgræðslu víða um land. Myndin er frá Mýrdalssandi. Fréttablaðið/GVA „
Þetta verður aldrei þannig að það verði bara sogið upp úr rotþrónum og því svo frussað yfir landið,“ segir Sveinn Steinarsson, forseti bæjarstjórnar Ölfuss, þar sem til stendur að kanna notkun seyru til landgræðslu. Bæjarstjórnin samþykkti í síðustu viku að hefja samningaviðræður við Landgræðslu ríkisins og Heilbrigðiseftirlit Suðurlands um meðhöndlun og móttöku á seyru. Skoða á aðkomu fleiri sveitarfélaga í Árnessýslu að verkefninu.Sveinn SteinarssonHverfur ekki af sjálfu sér „Blessuð seyran hverfur ekki af sjálfu sér,“ segir Sveinn Steinarsson. „Það þarf að finna henni farveg og nú eru menn að horfa til þess að nota hana við landbætur.“ Sveinn undirstrikar að verkefnið sé á frumstigum hvað varði Ölfus. Rætt er um svæði Landgræðslunnar norðan og vestan við Þorlákshöfn. „Við höfum svo sem næg landsvæði sem þarf að græða upp, það er ekki málið. Það þarf að finna stað sem er heppilegur og sátt getur orðið um.“ Seyra fellur til í sívaxandi mæli, meðal annars vegna aukins fjölda sumarhúsa sem rotþrær standa við. Sveitarfélagið losar 250 til 270 rotþrær og það mun skila um níu tonnum af þurrefni. Að sögn Sveins snýst verkefnið í raun um að koma seyrunni fyrir í sátt við umhverfið.Allir standa frammi fyrir vandanum „Það eru allir að tæma rotþrær einhvers staðar og það standa meira og minna öll sveitarfélög nú orðið frammi fyrir þeirri spurningu hvað gera eigi við seyruna. Sorpa er, að því er mér skilst, hætt að taka við þessu og þá verða menn að finna út úr því, sjálfir eða í samvinnu við aðra,“ segir Sveinn sem, eins og fram kemur hér í upphafi, undirstrikar að ekki eigi að sprauta seyru nánast beint úr rotþróm salerna yfir landið. „Það væri ógeðslegt ef það væri gert og það stendur ekki til,“ ítrekar Sveinn. Seyran sem ekki er blönduð kalki verður sett ofan í plægða jörð. „Menn eru bara að þróa leiðir til að nýta þetta, láta hringrásina virka og græða landið með frábærum áburði.“
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Sjá meira