Telja óviðunandi að verið sé að dreifa röngum upplýsingum Stefán Árni Pálsson skrifar 3. desember 2014 19:11 VÍSIR/ANTON
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins gera alvarlega athugasemd við fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg um nýsamþykkta fjárhagsáætlun 2015 en þetta kemur fram í tilkynningu frá Borgarstjórnarhóps Sjálfstæðisflokksins. Þar kemur fram að í fréttatilkynningunni sé því ranglega haldið fram að framlag borgarinnar til hráefniskaupa í leik- og grunnskólum hækki um 56 milljónir króna frá fyrri áætlun. „Í dag hafa margir fjölmiðlar notað þessa tilkynningu í fréttaflutningi sínum og stuðst við þær tölur sem þar koma fram. Hið rétta er að fjárveitingar til skólamötuneyta lækka um 28 milljónir á milli ára auk þess sem umrædd framlög eru ekki vísitölubætt eins og flestar aðrar fjárveitingar borgarinnar. Þrátt fyrir að á þetta hafi verið bent hér á fundinum hafa fulltrúar meirihluta Samfylkingar, Bjartrar framtíðar, Pírata og Vinstri grænna ekki sýnt því neinn áhuga að þessi fréttatilkynning verði leiðrétt.“ Borgarstjórnarhópurinn telur óviðunandi að meirihluti þessara flokka dreifi með þessum hætti röngum upplýsingum í fréttatilkynningu sem send eru út á vegum Reykjavíkurborgar og afvegaleiði þannig fjölmiðla í umfjöllun þeirra um málefni skólamötuneyta í Reykjavík, sem verið hafa í brennidepli að undanförnu. „Í frumvarpi meirihlutans að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 2015, sem lagt var fram í borgarstjórn 4. nóvember sl., var gert ráð fyrir að fjárveitingar til hráefniskaupa skólamötuneyta yrðu skert um samtals 94 milljónir króna á milli ára, 36 milljónir til mötuneyta leikskóla og 58 milljónir til mötuneyta grunnskóla. Eftir að borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu til að horfið yrði frá umræddri skerðingu og framlög til hráefniskaupa yrðu vísitölubætt um 3,4% á milli ára, lagði meirihlutinn fram breytingartillögu við frumvarpið, sem fól í sér að dregið yrði úr áðurnefndri skerðingu um 66 milljónir, þar af yrði 36 milljónum varið til mötuneyta leikskóla en 20 milljónum til grunnskólanna. Eftir sem áður lækka fjárveitingar til skólamötuneyta um 28 milljónir króna milli áranna 2014-2015 auk þess sem ekki er gert ráð fyrir neinni vísitölubætingu,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Sjá meira