Skúr með ómetanlegum listaverkum fauk um koll Jakob Bjarnar skrifar 3. desember 2014 13:40 Hrafn sýnir ljósmyndara Vísis vegsummerki og lætur sér hvergi bregða þó heil listasýning sé á hvolfi í hlaði hans. visir/pjetur
Skúr með ómetanlegum listarverkum fauk um koll í óveðrinu sem var um síðustu helgi. Ekki er enn vitað hvort um verulegt tjón er að ræða. Gjörningalistamaðurinn heimsþekkti, Ragnar Kjartansson, opnaði myndlistarsýningu í Skúrnum, fyrir um mánuði. Ragnar málaði portrettmyndir meðan fyrirsætan, Bjarni Friðrik Jóhannsson sat fyrir og hlustaði í sífellu á slagarann Take it easy með Eagles. Skúrinn fauk um koll í óveðrinu mikla á sunnudaginn, en hann er staðsettur við hús Hrafns Gunnlaugssonar úti á Laugarnestanga. Ekki hefur tekist að ná tali af Ragnari þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir, en Hrafn segir þetta tilkomumikið, og vísar til Skúrsins sem nú er á hvolfi á hlaði hans. Eiginlega hvernig sem á er litið.visir/pjetur„Hann var að mála þarna í tvo sólarhringa. Einskonar happening. Skúrinn hefur staðið hér síðan og verið sýning. Svo fauk hann með látum. Hann er hér á hvolfi bara á bílastæðinu. Það er dramatískt að horfa á þetta. Með allri myndlistinni inni í. Nokkur málverk sem hann málaði og eiga víst að fara víðar, í einhver söfn úti í heimi. En, jájá, það getur orðið hvasst hérna á Laugarnestanganum,“ segir Hrafn – og lætur sér hvergi bregða, frekar að honum þyki þetta skemmtilegt. „Kannski er þetta partur af innstalleringunni? Að skúrinn fjúki. Hann stendur hérna alveg við húsið. Fallegur staður. Öll Reykjavík í bakgrunni, alveg á sjávarkambinum, eins gott að hann fauk ekki út í sjó, heldur í hina áttina.“ Og það er vitaskuld laukrétt hjá Hrafni; skúrinn sjálfur, umgjörðin, er hluti listaverksins og þjónar reyndar, sem slíkur, fleiri listamönnum. Hrafn segir að Ragnar og hans menn hafi komið og tekið þetta út. „Já, voru að skoða þetta og aðstæður. Þeir ætla að koma skúrnum fyrir einhvers staðar annars staðar og halda sýningunni áfram. Þetta var ansi flott, falleg málverk og gaman að hafa þá þegar þeir voru hérna.“
Tengdar fréttir Bjarni Bömmer hlustar á Take it easy Skúrinn stendur nú við hús Hrafns Gunnlaugssonar og þar opnar Ragnar Kjartansson sérstæða myndlistarsýningu á morgun. Bjarni hlustar á Eagles á meðan Ragnar málar. 31. október 2014 17:00 Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Fleiri fréttir Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Sjá meira
Bjarni Bömmer hlustar á Take it easy Skúrinn stendur nú við hús Hrafns Gunnlaugssonar og þar opnar Ragnar Kjartansson sérstæða myndlistarsýningu á morgun. Bjarni hlustar á Eagles á meðan Ragnar málar. 31. október 2014 17:00