Jólatónleikar Fíladelfíu teknir af dagskrá RÚV: „Ég er aðallega leiður fyrir hönd þjóðarinnar“ Bjarki Ármannsson skrifar 7. október 2014 07:00 Óskar Einarsson, tónlistarstjóri Fíladelfíu. Vísir/Vilhelm „
Svona er þetta bara. Ég er aðallega leiður fyrir hönd þjóðarinnar því það er gríðarlegt áhorf á þetta, um hundrað þúsund manns sem bíða eftir þessu á aðfangadagskvöld klukkan ellefu. Við höldum auðvitað tónleikana og söfnum en það hefði verið gaman að leyfa þjóðinni að njóta með.“ Þetta segir Óskar Einarsson, tónlistarstjóri Fíladelfíu-kirkjunnar í Reykjavík, en RÚV greindi honum fyrir tveimur vikum frá því að árlegir jólatónleikar safnaðarins verða teknir af dagskrá í ár. Í bréfinu sem Óskar fékk voru tvær ástæður nefndar fyrir þessari ákvörðun, annars vegar sú að útsending tónleikanna rúmist ekki innan fjárhagsáætlunar RÚV og hins vegar að ekki sé hægt að réttlæta það að sami hópurinn komist að ár eftir ár. „Sem er kannski alveg hægt að skilja, en þetta er bara orðið að hefð og landsmönnum farið að þykja vænt um þetta,“ segir Óskar, en tónleikarnir hafa verið sýndir á RÚV ár hvert frá því árið 2001. Hann gefur einnig lítið fyrir það að málið snúist um kostnað við að sýna tónleikana. „RÚV hefur fengið þetta á silfurfati, þeir hafa ekkert þurft að borga fyrir þetta. Þeir eru bara með sitt fólk í vinnu sem kemur og tekur upp. Við sjáum um hljóðvinnslu og borgum með þessu, það hefur verið allt að ein og hálf milljón sem við borgum með. Þannig að þetta snýst ekkert um kostnað.“Ákvörðun RÚV um að taka morgunbæn af dagskrá var harðlega gagnrýnd og á endanum tekin til baka.Vísir/GVAÁður deilt um útsendingu Það hefur áður komið til tals að taka tónleikana af dagskrá RÚV. Árið 2009 fór af stað áskorun á Facebook um hætta við að sýna tónleikana eftir að Friðrik Ómar Hjörleifsson söngvari hélt því fram að hann hefði ekki fengið að koma fram í Fíladelfíu vegna þess að hann er samkynhneigður. „Það hafa stundum verið gagnrýnisraddir um þetta en þáverandi útvarpsstjóri, Páll Magnússon, vildi alls ekki hrófla við þessu,“ segir Óskar. „Þetta er líka gott málefni, það er verið að safna fyrir þeim sem minna mega sín og það hafa safnast á þriðja tug milljóna undanfarin ár.“ Óskar segir að fulltrúar safnaðarins hafi farið á fund RÚV í maí eftir að Magnús Geir Þórðarson tók við af Pál Magnússyni sem útvarpsstjóri. Þeir hafi ekki reiknað með öðru en að tónleikunum yrði haldið á dagskrá. Hann segist þó hafa fengið „óþægilega tilfinningu“ í haust þegar ekkert svar hafði borist og tilkynnt var um áform RÚV að taka liðina Morgunbæn og Orð dagsins af dagskrá Rásar eitt. „Þá hélt að þeir ætluðu kannski að ganga ennþá lengra og taka út ennþá meira af trúarlegu efni,“ segir Óskar. „Þó þetta séu bara jólatónleikar.“Gætu snúið aftur á dagskrá Svar með ákvörðun RÚV barst svo ekki fyrr en í lok september. Óskar segir að ekki sé útilokað að tónleikunum verði sjónvarpað aftur næstu ár. Í ár standi þó til að Fíladelfía gefi tónleikana út á DVD-disk fyrst þeim verði ekki sjónvarpað. „Þeir gáfu það upp í bréfinu að þeir vildu gjarnan skoða aðkomu að þessu síðar,“ segir Óskar. „Við útilokum það ekki. Þannig það verður bara að koma í ljós.“
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira