Ótrúleg röð tilviljana olli því að drengur datt úr rútu á ferð Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 10. desember 2014 19:42
Faðir sjö ára drengs, sem datt út úr rútu á ferð á leið í skólasund fyrr í vikunni, segir ótrúlega mildi að hann hafi ekki stórslasast. Rútan hefur verið yfirfarin og verklagi í skólanum breytt vegna slyssins.Rútan var á leið með sextán börn í skólasund, og var á vistgötuhraða, en svo virðist sem belti drengsins hafi losnað og hann fallið að hurð sem opnaðist. Drengurinn datt út úr rútunni á gatnamótum Kársnesbrautar og Urðarbrautar í Kópavogi, en bílstjórinn varð ekki var við slysið og keyrði áfram sem leið lá að Kópavogslaug, sem er um hálfum kílómetra í burtu. „Þetta var enginn glæfraakstur eða neitt svoleiðis, og það er kannski ekki skrítið að bíljstórinn hafi ekki áttað sig á aðstæðunum þar sem sonur minn sat aftast og það voru fimmtán háværir krakkar í rútunni. Þetta er líka svo stjarnfræðilega fjarstæðukennt að það er eiginlega brandari, bara ekki eins jákvætt,“ segir Sindri Viborg, faðir drengsins. Tveir vegfarendur komu drengnum til hjálpar þar sem hann lá á götunni og fóru með hann að Kópavogslaug. „Hann var auðvitað í sjokki og grátandi og það tók þá smá tíma að fá upp úr honum hvað hefði gerst, en svo sagði hann þeim að hann hefði dottið út úr rútu, eins fáránlega og það hljómar,“ segir hann. Sonur Sindra fékk stóran skurð á höfuðið í fallinu og var fluttur á á Barnaspítala Hringsins til eftirlits og athugunar, en Sindri segir ótrúlegt að ekki hafi farið verr „Strákurinn fór bara í skólann daginn eftir og er bara nokkuð góður, allavega betri en við foreldrarnir“. Rútan sem keyrði börnin er með öll tilskilin leyfi og bílstjórinn athugaði hvort allir væru í bílbeltum áður en haldið var af stað. Gagrýni Sindra beinist því helst að því að enginn frá skólanum hafi umsjón með börnunum þegar þau eru keyrð til og frá sundlauginni. Bæði skólayfirvöld og Kópavogsbær hafa nú lýst því yfir að það standi til bóta og að umsjónarmaður muni nú fylgja þeim. „Auðvitað er ótrúlegt að fá svona fréttir, þetta er svo mikil röð tilviljana að það er eiginlega eins og í bíómynd. Líkurnar á að svona gerist eru stjarnfræðilegar. En það hafa allir brugðist rétt við í þessu máli, skólinn, bærinn og rútufyrirtækið. Ég er mjög ánægður með það,“ segir hann.
Mest lesið Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Fleiri fréttir Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Sjá meira