Áætla að ná lögbundnu skuldaviðmiði 2015 Jóhann Óli Eiðsson skrifar 10. desember 2014 08:15 Bygging nýs leikskóla er áætluð í Neskaupstað. mynd/óðinn magnason
Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2015 og árin 2016-18 var samþykkt einróma af sveitarstjórnarmönnum. Samkvæmt áætluninni mun gjaldskrá leikskóla haldast óbreytt og skólamáltíðin mun lækka um fimm prósent. Framlög til fræðslumála munu aukast um hundrað milljónir króna milli ára. Einnig munu 660 milljónir renna til ýmissa framkvæmda. Þar af munu 200 milljónir fara í að byggja nýjan leikskóla í Neskaupstað sem taka á í gagnið árið 2016. Einnig er unnið að stækkun hafna í Neskaupstað og á Reyðarfirði.Páll Björgvin Guðmundsson„Í sveitarfélaginu eru sterk útflutningsfyrirtæki. Tekjurnar eru góðar og gera okkur kleift að greiða niður skuldir,“ segir Páll Björgvin Guðmundsson, sveitarstjóri Fjarðabyggðar. Árangurinn sé slíkur að áætlað er að lögbundnu 150 prósenta skuldaviðmiði ætti að vera náð í lok næsta árs. Upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir því árið 2017. „Við höfum sýnt aðhald í rekstri og einbeitt okkur að því að greiða skuldir en þó byggt upp innviði samfélagsins,“ segir Páll. Unnið hafi verið að stækkun hafnarinnar í Norðfirði og skóla- og atvinnumannvirki hafi verið byggð upp. Einnig sé atvinnuslökkviliði nú til að dreifa í sveitarfélaginu. Enn fremur segir Páll að tækifæri séu til frekari uppbyggingar. Sveitarfélagið geti boðið upp á mikla þjónustu án þess að þurfa að leggjast í stórframkvæmdir. „Eitt þeirra fyrirtækja sem leitar að olíu á drekasvæðinu hefur til að mynda valið að sækja þjónustu til okkar. Hér er fjöldi fyrirtækja sem þjónusta álverið sem eru vel til þess fallin að veita olíufyrirtækjum þjónustu,“ segir Páll að lokum.
Mest lesið Miklar hreinsanir fyrirhugaðar í borgarstjórnarliði xD Innlent Hvað er vitað um manninn sem var skotinn við Mar-a Lago? Erlent Rektor sendir frá sér yfirlýsingu vegna vantrauststillögu Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Ófremdarástand eftir andlát voldugasta fíknaefnabaróns heims Erlent Mælir gegn heilskimun Intuens Innlent Framboðið heitir Vinstrið og Finnur verður í sjötta sæti Innlent Loka hvorki fornmáladeildinni né hætta latínukennslu Innlent Ótrúlegur öldugangur og margt að mestu horfið Innlent „Hverju eru þau að leyna? Hvað hafa þau að fela?“ Innlent Fleiri fréttir Ótrúlegur öldugangur og margt að mestu horfið „Hverju eru þau að leyna? Hvað hafa þau að fela?“ Vopnin ekki til að drepa, heldur verja „Mikið áfall að vera allt í einu komin með eld í bakgarðinn“ Áfall að vera með eld í bakgarðinum Umferðartafir á meðan rútunni er komið burt Rektor sendir frá sér yfirlýsingu vegna vantrauststillögu Markmiðið ekki að höfða til kvíða aðstandenda Skilorð fyrir vopnaðan nytjastuld Loka hvorki fornmáladeildinni né hætta latínukennslu Erfitt að segja til um upptök gróðureldanna Mælir gegn heilskimun Intuens Miklar hreinsanir fyrirhugaðar í borgarstjórnarliði xD Stefnuræða Þorgerðar Katrínar og gróðureldarnir Enn ekkert ákveðið um hvenær þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram Framboðið heitir Vinstrið og Finnur verður í sjötta sæti Bein útsending: Stefnuræða Þorgerðar Katrínar í mannréttindaráðinu Síbrotagæsla eftir afskipti lögreglu tvo daga í röð Leggur til að dánarbú án lögerfingja renni í almannaheillasjóð Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður sagt geta orðið strax í ágúst Vatnsból hefðu verið í hættu ef vindáttin hefði verið önnur Tvær handtökur í nótt Enginn sinueldur og róleg nótt hjá slökkviliði eftir eril gærdagsins Voru í þann mund að slökkva eldinn þegar það barst tilkynning um annan Leggja til vantraust á hendur Silju Báru Líf bar sigur úr býtum Intuens hafi nýtt sér óttann og kvíðann sem krabbamein valdi til að græða Sinueldur við Elliðavatn „Hrikalega óábyrgt og jafnvel hættulegt“ að senda börnin sín vísvitandi veik á leikskóla Rúta full af ferðamönnum fór út af veginum Sjá meira