Fæðingarorlofssjóði óheimilt að krefjast endurgreiðslna Óli Kristján Ármannsson skrifar 10. desember 2014 07:00 Margir lækka í tekjum við að fara í fæðingarorlof. Einhverjir kunna að hafa reynt að svindla á kerfinu meðan misfellur í samskiptum launadeilda og Fæðingarorlofssjóðs hafa komið í bakið á öðrum þegar rukkanir hafa borist að vegna ofgreiðslna frá Fæðingarorlofssjóði. Nordicphotos/Getty Images
StjórnsýslaFæðingarorlofssjóður þarf að endurgreiða fólki stærstan hluta þeirra upphæða sem innheimtar hafa verið síðustu ár vegna ofgreiddra fæðingarorlofsbóta. Í fjáraukalögum þessa árs og fjárlögum 2015 sem nú eru til umræðu á Alþingi er gert ráð fyrir 70 milljóna króna framlagi til sjóðsins vegna þessa. Leó Örn Þorleifsson, forstöðumaður Fæðingarorlofssjóðs, segir að með áliti umboðsmanns Alþingis, fyrst 2012, svo 2013 og í nýju óbirtu áliti, hafi komið í ljós að framkvæmd á frádráttarreglu hafi ekki staðist. Henni hafi verið beitt þegar fólk fór umfram ákveðin tekjumörk í orlofi sínu á meðan það þáði greiðslur. Frá árinu 2007 hefur sjóðurinn innheimt, auk 15 prósenta álags, tæplega 329 milljónir króna vegna umframgreiðslna í fæðingarorlofi.Leó Örn ÞorleifssonMeð álitsgerðum umboðsmanns segir Leó komna í ljós gloppu sem mismunað geti þeim sem fái greiðslur úr fæðingarorlofssjóði. „Sumar stéttir geta haldið óskertum tekjum og fengið fæðingarorlof til viðbótar,“ segir hann. Þeir geti frekast nýtt sér gloppuna sem ráði sér sjálfir í vinnu. Sjóðurinn hafi tekið alvarlega hlutverk sitt sem vörslumenn opinbers fjár og reynt að gæta þess að fólk ætti ekki að geta hagnast á greiðslum úr fæðingarorlofssjóði eða spilað á kerfið. Leó Örn segir allt undir í endurupptöku ófyrndra mála og telur þá fjármuni sem ráðstafað er til verkefnisins á fjár- og fjáraukalögum dekka það að mestu. Ekki sé búið að ákveða framkvæmdina en líklegast sé að sjóðurinn ráðist í verkefnið að eigin frumkvæði þannig að fólk þurfi ekki að sækja sérstaklega um endurgreiðslu. Um leið telur hann að álit umboðsmanns hefði mátt vera víðtækara strax í upphafi, fyrst ákvæðið sem byggt var á við innheimtuna stóðst ekki skoðun. „Skýrt álit strax í upphafi hefði fækkað þessum málum sem upp eru komin. Að mínu áliti hefði hann átt að geta séð það strax í fyrsta áliti.“
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Sjá meira