Konur verja færri tímum í viku í sveitarstjórnarstörf Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 31. maí 2014 08:00 Misjafnt er hvað kjörnir fulltrúar fá stóran skerf af nefndarstörfum og gæti fjöldi vinnustunda á viku tengst því. vísir/vilhelm
Konur segjast eyða færri klukkustundum á viku í sveitarstjórnarstörf en karlar, samkvæmt könnun sem Jafnréttisstofa gerði meðal kjörinna fulltrúa. Einnig virðist þeim ganga betur að samræma starfið fjölskyldulífinu. Flestir svarendur verja 5-20 tímum í viku í sveitarstjórnarstörf eða 63 prósent svarenda. Mestur munur milli karla og kvenna er í neðsta og efsta valflokknum. 24 prósent kvenna verja að jafnaði 0-5 tímum í viku í störfin en 22 prósent karla segjast vinna meira en 20 tíma í viku. Tryggvi Hallgrímsson, sérfræðingur á Jafnréttisstofu, segir þessar niðurstöður vissulega vekja fleiri spurningar. „Það þarf að kanna hvort munur sé á verkefnum karla og kvenna sem gæti útskýrt þennan mun á vinnuframlagi,“ segir Tryggvi og bendir á að misjafnt sé hvað kjörnir fulltrúar fái stóran skerf af nefndarstörfum og fundarhöldum tengdum þeim. „Einnig væri áhugavert að kanna hvort það séu tengsl á milli fjölskyldulífsins og vinnustundanna. Hvort konur eigi auðveldara með að samræma fjölskyldulífið vinnunni því vinnuframlag þeirra er minna eða hvort þær beri meiri ábyrgð á heimilinu sem komi svo niður á vinnuframlagi.“Tryggvi Hallgrímsson, sérfræðingur á jafnréttisstofu, segir niðurstöður könnunarinnar vekja upp fleiri spurningar.Ríflega fimmtíu prósent svarenda í könnuninni segjast óánægð með laun sín og á það við bæði kynin. Ekki er heldur kynbundinn munur á svörum fulltrúanna þegar þeir eru spurðir hvort þeir hafi gefið kost á sér til áframhaldandi starfa í sveitarstjórn. Um helmingur karla og kvenna segjast gefa kost á sér. Tryggvi segir þetta athyglisverða niðurstöðu í ljósi umræðunnar um hlut kvenna á framboðslistum. „Umræðan sem hefur verið í undanfara komandi kosninga hefur til dæmis snúist um hvort konum sé hættara til að hætta sveitarstjórnarstörfum. Þessi könnun sýnir að þær hafi sama vilja og karlarnir til að halda áfram þannig að það virðist ekki fótur fyrir því.“ Könnunin var send til 524 viðtakenda og alls svöruðu 267 eða 51 prósent. Meðal þátttakenda voru konur 46 prósent og karlar 54 prósent.
Kosningar 2014 fréttir Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Erlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Erlent Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Erlent Fleiri fréttir Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Fékk ekki að borða nema hún stundaði kynlíf Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Sjá meira